Rithöfundurinn Þórdís Gísladóttir er mjög virk á Twitter og segir oft skemmtilega frá eins og henni einni er lagið. Hún birti skemmtilega færslu í gærkvöldi þar sem hún sagði frá óvenjulegu atviki.
„Fyrir nokkrum mínútum hóf ókunnur maður samtal við mig eins og við þekktumst. Eftir nokkrar furðulegar setningar kom í ljós að hann tók feil á mér og Ölmu Möller,“ segir Þórdís og geta eflaust einhverjir tekið undir það að svipur er með Þórdísi og Ölmu.
Þetta vakti kátínu meðal fylgjenda Þórdísar og bentu einhverjir á að ekki væri leiðum að líkjast, báðar væru þær elegant.
Fyrir nokkrum mínútum hóf ókunnur maður samtal við mig eins og við þekktumst. Eftir nokkrar furðulegar setningar kom í ljós að hann tók feil á mér og Ölmu Möller.
— Þórdís Gísladóttir (@thordisg) February 1, 2022