Höddi Magg opnar sig: „Ég var langt niðri mjög lengi“

Íþróttafréttamaðurinn Hörður Magnússon er í athyglisverðu viðtali í hlaðvarpsþættinum Chess After Dark þar sem hann ræðir meðal annars erfiðan brottrekstur sinn úr starfi hjá Sýn árið 2019.

Hörður hefur um langt skeið verið einn allra vinsælasti íþróttalýsir landsins og voru margir sem ráku upp stór augu þegar hann var rekinn. Hann er þekktur fyrir tilfinningaríkar og líflegar lýsingar og afburðaþekkingu á íþróttum, fótbolta þá einna helst.

433 á DV.is fjallar um viðtalið við Hörð en hann hefur ekki áður tjáð sig opinberlega um brottreksturinn.

„Hann kom mér í opna skjöldu á þessum tíma, í ljósi samræðna við yfirmann og aðra. Þórhallur Gunnarsson hafði tekið við, ég veit það ekki. Ég er ekki rétti maðurinn til að svara því, ég var langt niðri mjög lengi. Það er enginn ómissandi, maður hafði lagt hjarta og sál í starfið í tuttugu ár,“ sagði Hörður meðal annars.

Nánar um viðtalið á 433, knattspyrnuvef DV.is.