Hörður Magnússon, betur þekktur sem Höddi Magg, hefur komið sterkur inn hjá RÚV á leikjum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. Hörður hefur lýst nokkrum leikjum í keppninni og staðið sig með miklum sóma enda fáir líflegri og fróðari um fótbolta en Hörður.
Sonur Harðar, Magnús Haukur Harðarson, skrifaði færslu á Twitter í gærkvöldi þar sem hann sagði að það væru sennilega um 30 ár síðan hann heyrði fólk fyrst tala ómálefnalega um föður hans.
„Og nú 30 árum seinna er það en þannig því miður. Skrápurin er ansi þykkur fyrir þessu og fyrir mér er enginn betri í að lýsa knattspyrnuleik heldur en pabbi minn. Til ykkar sem eruð ósammála, lifið heil,“ sagði hann.
Óvíst er til hvaða umræðu Magnús Haukur er nákvæmlega að vísa en ef marka má athugasemdir undir færslu hans eru allir á því að Hörður sé með okkar allra bestu lýsendum.
„Elska að horfa á leiki með pabba þinn sem lýsanda. Ástríða, dýpt og þekking,“ sagði Stefán Hrafn Hagalín til dæmis. Baggalúturinn Karl Sigurðsson er sömu skoðunar.
„Frábær. Finnst hann samt bestur þegar hann situr við hliðina á mér að útskýra allskonar sem er að gerast í leiknum, hvort sem það er á bar eða Anfield.“
Fleiri tóku í svipaðan streng.
„Að hlusta á Hödda Magg lýsa, tala um fótbolta eða stjórna umræðu um fótbolta er mjög skemmtilegt. Hann ætti að skoða hlaðvarpsleikinn,“ sagði einn og annar bætti við:
„Ég var einmitt að hugsa áðan hvað það er gaman að hann sé að lýsa. Alvöru passjón!“
Ætli það séu ekki ca 30 ár síðan ég heyrði fólk tala ómálefnalega um föður minn og nú 30 árum seinna er það en þannig því miður. Skrápurin er ansi þykkur fyrir þessu og fyrir mér er enginn betri í að lýsa knattspyrnuleik heldur en pabbi minn.Til ykkar sem eruð ósammála lifið heil
— Max Koala (@Maggihodd) November 22, 2022