Hödd Vilhjálmsdóttir, almannatengill, hafnar því sem kemur fram í yfirlýsingu Ragnars Gunnarssonar, barnsföður síns, um að þau eigi í forræðisdeilu.
Ragnar steig til hliðar í morgun sem framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Brandenburg eftir að Hödd ásakaði hann um heimilisofbeldi.
Ragnar sagði í yfirlýsingu sinni að hann ætlaði ekki að ræða málið frekar:
„Deilur okkar, sem varða forræði, eru í sínu rétta ferli. Ég mun stíga til hliðar úr starfi mínu sem framkvæmdastjóri hjá Brandenburg. Ég tel mér ekki fært að sinna því starfi fyllilega á sama tíma og ég tekst á við þetta mál með hagsmuni dóttur okkar að leiðarljósi,“ sagði hann.
Hödd hafnar þessu og hefur DV eftir henni:
„Ég hef fengið staðfest hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu að ekkert forræðisdeilumál tengt okkur er í gangi hjá embættinu. Ragnar talar um deilur og forræði en ekkert slíkt er í gangi.“