Fjölmargir hafa nú gagnrýnt fjölmiðlakonuna Siggu Lund fyrir ummæli sem hún lét falla í útvarpsþættinum Zúúber á Bylgjunni í gær en þáttastjórnendur voru að tala um holdarfar og fitufordóma þegar Sigga minntist á tónlistarmanninn Valdimar Guðmundsson.
„Mér finnst mjög leiðinlegt að nefna þetta en ég held að margir hafi orðið varir við sína fitufordóma, vegna þess að ég varð það, þegar við lásum greinina um daginn um ákveðinn söngvara sem á von á barni með kærustunni sinni,“ sagði Sigga og vísaði þar til Valdimars og unnustu hans, Önnu Björk Sigurjónsdóttur, en þau tilkynntu um síðustu helgi að þau ættu von á sínu fyrsta barni saman.
Sigga virtist hikandi við að halda sögunni áfram en sagði að lokum að það fyrsta sem hafi komið í huga hennar hafi verið að hann væri með „aukakíló.“ Hinir þáttastjórnendurnir bentu þó á að hannværi heilbrigður og svaraði Sigga; „Á núna að fara að kaffæra mér?“
Sakar Siggu um ofbeldi
Sylvía Guðmundsdóttir, systir Valdimars, er meðal þeirra sem hafa gagnrýnt ummæli Siggu Lundar en í færslu sinni á Facebook um málið segir hún að eina sem hafi komið upp í huga hennar eftir að hafa hlustað á þáttinn væru blótsyrði og svívirðingar.
„Til að bæta gráu ofan á svart hringir hún í Valdimar í auglýsingahlénu og biður hann að koma í símaviðtal og tjá sig um málið, sem hann afþakkaði. Þessi kona beitti bróðir minn ofbeldi í beinni útsendingu. Vanvirðingin sem hún sýnir honum og ástkæru barnsmóður hans er þvílík,“ segir Sylvía í færslunni.
„Reiðin kraumar inn í mér og èg vona svo heitt og innilega að hún þurfi að taka afleiðingum af þessu. Afleiðingum af því að hafa í sinni forréttindastöðu sem útvarpsstarfsmaður beitt bróðir minn ofbeldi og smánað hann og hans ástkæru í beinni útsendingu!“
„Er það gleði að beita manneskju andlegu ofbeldi í beinni...ítrekað?!?!“
Fleiri einstaklingar hafa tjáð sig um þáttinn undir færslu Siggu Lundar þar sem hún deilir þættinum, til að mynda einkaþjálfarinn Ásdís Inga Haraldsdóttir. „Sæl Sigga, ég veit ekki hvað var í gangi á setti í dag en ef það er einhver smá partur af þér sem vill fræðast og uppræta þá fordóma sem þú augljóslega hefur þá er góð leið að byrja hér,“ segir Ásdís og vísar til rannsókna um málið.
Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, formaður Samtaka um líkamsvirðingu, setur einnig út á færslutexta Siggu þar sem hún hvatti fólk til að missa ekki af gleði dagsins. „Gleði? Er það gleði að beita manneskju andlegu ofbeldi í beinni...ítrekað?!?!“ segir Tara.
Þáttinn í heild sinni má finna hér en ummæli Siggu má finna þegar ein klukkustund og fimmtán mínútur eru liðnar af þættinum.