Christian Eriksen, leikmaður danska landsliðsins í fótbolta, var fluttur af vellinum á sjúkrabörum eftir að hafa hnigið niður skömmu fyrir hálfleik í leik Dana gegn Finnum á EM í fótbolta en Eriksen var við það að taka á móti innkasti frá samherja sínum þegar hann hneig niður.
Ljóst var að eitthvað alvarlegt var á seyði þegar Eriksen stóð ekki aftur upp en leikmaður Finna kallaði á sjúkraliða þegar hann tók eftir Eriksen liggjandi í jörðinni. Sjá mátti að Eriksen var ekki með meðvitund þegar leikmennirnir reyndu að tala við hann.
Endurlífgunartilraunir voru reyndar á Eriksen og mátti sjá að leikmenn beggja liða, sem og áhorfendur, væru í áfalli eftir atvikið. Liðsfélagar Eriksen mynduðu hring í kringum Eriksen til að veita honum næði og mátti þar sjá sjúkraliða hnoða hjarta Eriksen meðal annars.
Innan við 15 mínútum síðar var Eriksen fluttur af velli með sjúkrabörum en af myndum að dæma virtist hann vera með meðvitund þá.
UEFA hefur nú staðfest að Eriksen var fluttur á spítala þar sem ástand hans er nú stöðugt. Þá greina danskir miðlar frá því að Eriksen sé vakandi á Rigshospitalet í Kaupmannahöfn.
Enn hefur ekki verið greint frá því hvað varð til þess að Ericsen hneig niður.
🇫🇮 Finland fans: “Christian”
— talkSPORT (@talkSPORT) June 12, 2021
🇩🇰 Denmark fans: “Eriksen”
Fans still inside the stadium are chanting @ChrisEriksen8’s name together. 🙏
pic.twitter.com/djUgg4pS1Q