„Allt í einu fatta ég að þeim finnst þetta óþægilegt og ég spyr hvort það sé ekki allt í lagi,“ segir Hlynur Hallgrímsson sem varð vitni að miður skemmtilegu atviki í miðborg Reykjavíkur á dögunum.
Hlynur lýsti þessu í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi. Varð hann vitni að því þegar maður, líklega um fertugt, ógnaði þremur eldri borgurum í miðborg Reykjavíkur um hábjartan dag síðastliðinn fimmtudag. Andaði maðurinn vísvitandi framan í þau og var hortugur.
Hlynur telur að fólkið sem maðurinn ógnaði, tveir karlar og ein kona, hafi verið á áttræðisaldri en konan var með grímu fyrir andlitinu. Hlynur var að ganga niður Laugaveginn þegar hann sá þremenningana ræða við manninn en það vakti athygli Hlyns að maðurinn var alveg ofan í andlitunum á þeim.
„Ég hugsaði bara fyrst að þarna væri fólk sem væri ekkert að pæla í einum eða tveimur metrum,“ segir Hlynur en hann sá að ekki var allt með felldu þegar hann gekk upp að fólkinu.
„Ég heyri að þetta er ekki samtal heldur var hann hálfpartinn að hvæsa á þau að það væri verið að ljúga að þeim,“ segir Hlynur við Fréttablaðið en hann starfar sem sérfræðingur í gagnavísindum hjá Reykjavíkurborg.
Hlynur segir að maðurinn hafi brugðist nokkuð illa við því þegar Hlynur spurði hvort ekki væri allt í lagi. Hann hafi spurt Hlyn á móti hvort ekki væri allt í lagi hjá honum. Hann segir að maðurinn hafi ekki gert sig líklegan til að beita ofbeldi en þó áttað sig á því að fólkinu fyndist hegðun hans truflandi.
„Ég skal alveg viðurkenna að þetta var drullu óþægilegt því hann var svo ör og óútreiknanlegur,“ segir hann við Fréttablaðið og bætir við að það óþægilegasta hafi verið að maðurinn var fimm sentímetrum frá andlitum fólksins. „Maður hugsar bara að ef hann hefði verið veikur þá er þetta það nálægt að ég veit ekki hvort það hefði verið eitthvað gagn af því að stöðva þetta.“
Maðurinn hélt svo sína leið eftir þetta og kveðst Hlynur draga þá ályktun að um hafi verið að ræða óstöðugan einstakling sem er ginnkeyptur samsæriskenningum af einhverju tagi.