Hluthafar Sjóvá fengið fimm milljarða í arð: „Þetta eru peningar viðskiptavina“ - FÍB gagnrýnir ákvörðunina

Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, birti grein á vefsíðu sinni í gær þar sem farið er hörðum orðum um hluthafafund Sjóvá í október síðastliðnum. FÍB segir Sjóvá hafa hirt tvo og hálfan milljarð af viðskiptavinum sínum á mettíma.

Grein FÍB ber einmitt heitið „Það tók 10 mínútur að hirða 2,5 milljarða af viðskiptavinum Sjóvá“ og greinir félagið þar frá hinni umdeildu ákvörðun hluthafafundarins. Greinin hefst svona: „Á hluthafafundi Sjóvár þann 19. október síðastliðinn var samþykkt að greiða hluthöfum félagsins 2,5 milljarða króna til að „laga fjármagnsskipan félagsins“ eins og segir í fundargerðinni. Á mæltu máli þýðir þetta að Sjóvá hafði safnað mun meiri fjármunum í sjóði sína en þurfti til að standa undir tryggingastarfseminni.“

FÍB segir fundinn aðeins hafa staðið yfir í tíu mínútur: „Hluthafafundurinn stóð í 10 mínútur og má nærri geta að hluthafar hafi talið þeim mínútum vel varið.“

Því næst er borin upp spurning: „En hvernig stóð á því að Sjóvá átti of mikið af peningum – svo mikið að það þurfti að borga þá til eigendanna?“

FÍB segir ástæðuna einfalda: Sjóvá hefur rukkað viðskiptavini um mun hærri iðgjöld en þurfti í raun og veru. Þessum peningum hefur Sjóvá safnað í sjóði og ávaxtað. Þetta eru peningar viðskiptavina, en Sjóvá kaus engu að síður að senda þá til hluthafanna.“

Þá var tekin sambærileg ákvörðun árið 2020: „Þessir 2,5 milljarðar voru ekki eini glaðningurinn til hluthafanna frá Sjóvá. Félagið borgaði þeim einnig 2,65 milljarða króna í arð vegna ársins 2020.“

Því hafi hluthafar Sjóvá fengið ríflega fimm milljarða á tveimur árum. Peninga sem FÍB vill meina að eigi raunverulega að vera í eigu viðskiptavina: „Samtals fengu hluthafar því 5,15 milljarða króna frá Sjóvá. Að baki þessum „höfðingsskap“ standa oftekin iðgjöld og ávöxtun þeirra.“

FÍB hefur áður gagnrýnt Sjóvá og gáfu lítið fyrir afsakanirnar: „Eins og gefur að skilja gagnrýndi FÍB fyrirætlanir Sjóvár áður en til útgreiðslunnar kom. Sjóvá svaraði með þeirri gömlu og þreyttu tuggu að félagið tapaði stöðugt á bílatryggingum. Ekkert er fjarri sanni. Bílatryggingar eru bestu mjólkurkýr tryggingafélaganna. Hvernig getur Sjóvá borgað hluthöfum 5,15 milljarða króna af taprekstri?“