Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni líst ekki vel á stöðu mála í faraldrinum þessa dagana en metfjöldi smita greindist hér á landi í gær. Alls greindust 220 með veiruna og hafa aldrei fleiri greinst á einum degi. Ljóst er að margir þurfa að bíta í það súra epli að verja jólunum í sóttkví eða einangrun.
Þórólfur ræddi stöðu mála við Fréttablaðið nú í hádeginu og ef marka má orð hans þykir ekki ólíklegt að heilbrigðisyfirvöld, með Willum Þór Þórsson í fararbroddi, grípi í bremsuna.
Þórólfur vill ekki spá fyrir um framhaldið en segir ljóst að bregðast þurfi við. „Þróunin er þessi að kúrfan er upp á við og hún heldur áfram að fara upp nema við gerum eitthvað í því,“ sagði hann.
Hann skilaði minnisblaði til Willums í morgun en hann vill ekkert segja til um efni þess, segir að það verði að koma í ljós. Búist er við því að nýjar samkomutakmarkanir verði kynntar eftir fund ríkisstjórnarinnar á morgun. Þórólfi líst ekki vel á stöðuna og segir að smitrakning til dæmis gangi ákaflega illa.
„Það er mjög erfitt. Það er mjög erfitt með svona mikinn fjölda, menn missa svolítið yfirsýnina. Það er nokkuð ljóst að það er mjög erfitt fyrir þau smit sem eru að greinast utan sóttkvíar, sem eru rúmlega helmingur smita, það er erfitt að staðsetja þau nákvæmlega,“ segir hann og bætir við að fólk hafi farið víða.
„Fólk hefur verið á mörgum stöðum, það er margt í gangi. Eins og erum búin að benda á, þegar það er margt í gangi, þó að menn séu að vanda sig í sóttvörnum og séu með hraðgreiningarpróf og annað, þá bara eftir því sem hreyfanleiki fólks er meiri, því meiri aukast líkurnar á að smit geti orðið.“
Nánar á vef Fréttablaðsins.