Óhætt er að segja að frumvarp nokkurra þingmanna Sjálfstæðisflokksins um að gefa fólki skattaafslátt vegna kaupa á heimilishjálp hafi vakið athygli. Stundin fjallaði um málið á vef sínum í morgun en það eru fimm þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem leggja frumvarpið fram.
Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er Vilhjálmur Árnason og sagði hann þetta meðal annars í viðtali við Stundina:
„Þarna er verið að létta undir með þriðju vaktinni, má segja […] Það er gert auðveldara fyrir fólk, eins og ömmur og afa eða einhverja sem vilja, að vera í hlutastarfi. Þá er kominn einhver markaður fyrir þau og þau geta farið inn á þennan markað og fengið aukið hlutverk.“
Aðspurður hvort hægt sé að borga mömmu sinni fyrir að passa börnin sín og fá skattaafslátt á móti, segir hann við Stundina:
„Ég held að þetta hjálpi miklu frekar þeim fjölskyldum sem hafa ekki ömmu og afa.“ Þá sagði hann þetta ekki bara snúa að þrifum heldur einnig að því að hjálpa börnum að læra eða sækja þau í skóla eða tómstundir.
„Ef þú býrð til eitthvað umhverfi fyrir þetta þá getur þetta létt undir með ungum fjölskyldum sem eru kannski með missterk stuðningsnet nálægt sér. Svo fyrir þá sem vilja sinna þessari þjónustu í dag en hafa enga umgjörð um það.“
Í greinargerð með frumvarpinu er vísað til reynslu Svía og Dana í þessum efnum en þar fær fólk sambærilegan skattafrádrátt. Þá er fyrirkomulagið einnig talið geta dregið úr svartri atvinnustarfsemi.
Ef marka má athugasemdakerfi Stundarinnar eru margir á því að hugmyndin sé ekki sérstaklega góð.
„Og þeir sem hafa hreinlega ekki efni á heimilisaðstoð? Þarf ekki líka að lækka kostnað við flug til Tene, meðan heimilishjálpin er að þrífa?,“ sagði einn á meðan annar bætti við: „Það væri nær að tekjulítið fólk sem þarf að kaupa heimahjúkrun fengi fullkominn skattaafslátt.“ Enn annar sagði svo: „Á nú að niðurgreiða núna heimilisaðstoð eins og þrif og þess háttar fyrir ríka fólkið okkar, þau eiga nú erfitt í stóru húsunum sínum og kaupa sé heimilishjálp.“