Lögreglunni Norðurlandi vestra hafa borist áreiðanlegar upplýsingar þess efnis að hlaupbangsar eða hlaupkubbar sem innihalda fíkniefni séu í umferð á svæðinu.
Þetta kemur fram í færslu lögreglunnar á Norðurlandi vestra sem birtist á Facebook. Ekki er langt síðan greint var frá alvarlegu dæmi þar sem tvær ungar stúlkur, 13 og 14 ára, misstu meðvitund eftir neyslu slíkra bangsa. Að sögn lögreglu er um að ræða mjög hættuleg efni.
„Lögregla lítur málið alvarlegum augum og biður fólk um að vera á varðbergi gagnvart þessum ófögnuði. Ef einhverjir kunna að búa yfir upplýsingum um málið þá er skorað á þá að hafa samband við lögregluna.“
Lögregla vekur sérstaka athygli á því að allar upplýsingar eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Eins má koma upplýsingum nafnlaust í Upplýsinga-/fíkniefnasímann 800 5005:
Þegar hringt er í upplýsingasímann svarar talhólf. Þar getur þú lesið inn þær upplýsingar sem þú vilt koma á framfæri við lögreglu. Hægt er að gefa upplýsingarnar upp nafnlaust. Ef lögreglu er heimilt að hafa samband eða þú óskar þess þarf að taka það fram og gefa upplýsingar um nafn, símanúmer eða netfang. Einnig má hafa samband í gegnum netfangið [email protected]. Því er við að bæta að þrjú fíkniefnamál hafa komið upp á svæðinu síðan á mánudag og eru þau upplýst.