Þorsteinn Eggertsson textaskáld er flestum Íslendingum vel kunnur. Enginn hefur samið jafn mikið af textum og hann við hin ýmsu lög sem fyllt hafa vinsældarlista dægurtónlistar á Íslandi á undanförnum áratugum. Meðal þekktustu laganna eru Gvendur á Eyrinni, Ástarsæla og í sól og sumaryl auk fjölda annarra.
Þorsteinn verður gestur Sigurðar K. Kolbeinssonar í hlaðvarpinu Lífið er lag en nýjir þættir eru sendir út á streymisveitum alla laugardaga kl. 10.00 en þá má einnig nálgast á heimasíðunni hotelbokanir.is sem er aðal styrktaraðili hlaðvarpsins.
Þorsteinn varð 80 ára nýlega og þá fékk hann þetta skemmtilega skeyti sent frá samtökum höfunda, STEFi, en hann er einn stærsti textahöfundur þeirra samtaka.
Afmælisskeytið hljóðaði þannig:
Nú loga heilar 80 týrur!
Takk fyrir Harðsnúnu Hönnu, Rabbabara-Rúnu og Gvend á Eyrinni. Takk líka fyrir að sjá um Eldhúsverkin og standa við Gluggann á meðan Mamma grét. Þú gafst löndum þínum Söng um lífið, veittir þeim Lífsgleði og kveiktir víða Ástarsælu.
Að mörgu leyti hefðurðu gefið okkur Öll þín bestu ár og ófáum þætti lífið eymdarlegt Án þín.