Guðlaug Ásta Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur á bráðadeild, segist kvíða að snúa aftur til vinnu eftir sumarfrí.
„Sumarfríið hefur ekki farið í mikla útivist og afþreyingu með fjölskyldunni því ég er einfaldlega örmagna. Ég kvíði því að þurfa að snúa aftur til vinnu eftir nokkra daga,“ skrifar Guðlaug í pistli á Vísi.
„Ég byrjaði að vinna á hjúkrunarheimili þegar ég var 16 ára gömul og hef því unnið í heilbrigðisgeiranum í rúm 20 ár. Þetta er það sem mér finnst gaman að gera og það sem ég vil vinna við. Ég er líka þriggja barna móðir, eins og staðan er orðin þá sé ég ekki fram á að geta haldið áfram mínu starfi og geta líka sinnt börnunum mínum og heimilinu. Það er mjög brenglað að kvíða því að snúa aftur til vinnu sem maður elskar, heldur Guðlaug áfram.
Hún segist vera á síðustu dropunum eftir heimsfaraldur Covid.
„Síðustu tvö ár í heimsfaraldri hafa vissulega tekið á en það gerðu líka árin þar á undan. Það er nefnilega þannig að ástandið í heilbrigðisþjónustunni var ekki gott fyrir faraldurinn og nú er ég orðin hrædd um að kerfið sé hreinlega að hruni komið.“
„Það er skortur á hjúkrunarfræðingum, það er staðreynd. Það eru of margir sjúklingar til að hægt sé að veita örugga þjónustu og plássleysið býr til nær óyfirstíganlegt álag á okkur sem eftir stöndum. Er í alvörunni einhver sem vill að öryggi skjólstæðinga sé ekki tryggt? Ofan á það eru sífellt fleiri að hrökklast úr starfi sem þyngir róðurinn enn frekar. Spjallið meðal starfsmanna er farið að snúast um hversu lengi maður ætlar að endast og hvaða annan starfsferil maður ætti að velja.“
„Ég hef áhyggjur. Ég hef miklar áhyggjur af því að það virðist enginn, nema þau sem vinna í heilbrigðisgeiranum, gera sér grein fyrir að við erum á síðustu dropunum. Ég óttast það raunverulega að það sé að verða of seint að bjarga íslenska heilbrigðiskerfinu eftir áratuga vanrækslu og svelti. Áttaði sig í alvöru enginn sem tekur ákvarðanir á því að þjóðinni væri að fjölga og eldast? Datt engum í hug að gífurleg fjölgun ferðamanna setti álag á fleiri innviði en bara vegakerfið og útsýnisstaði?“ skrifar Guðlaug.
Hún segir að það séu til lausnir en það hefur skort þor a hrinda þeim í framkvæmd. Þá hafa hjúkrunarfræðingar ekki fengið að semja um launin sín í 11 ár.
„. Nú siglum við aftur inn í það tímabil að samningar eru að losna og enn og aftur stendur ekki nógu vel á til að ríkið geti leiðrétt hlut kvennastétta. Ég vil hinsvegar hvetja ríkið til að sýna skynsemi í komandi samningum, semja loksins við hjúkrunarfræðinga og reyna að bjarga því sem bjargað verður,“ skrifar Guðlaug að lokum.