Staðan á bráðamóttöku Landspítalans hefur verið á vörum margra upp á síðkastið. Fréttablaðið sendi fyrirspurn á Helgu Rósu Másdóttur um hversu margir hjúkrunarfræðingar hefðu hætt eða sagt upp frá áramótum. Hún segir það vera tuttugu og fimm manns.
Af þessum tuttugu og fimm hjúkrunarfræðingum hafa þrettán þegar hætt störfum og nokkrir hafa lækkað starfshlutfall. Tólf sögðu upp á allra síðustu vikum, af þeim koma níu uppsagnir til framkvæmda 1. september og þrjár þann 1. október.
Gert er ráð fyrir 90 stöðugildum fyrir hjúkrunarfræðinga samkvæmt mönnunarlíkani Landspítalans. Í dag eru 68,5 stöðugildi mönnnuð og því vantar 21,5 stöðugildi.
Fyrirhugaðar nýráðningar í haust gera ráð fyrir því að stöðugildi verði einungis 63 og því vantar enn þá 27 stöðugildi hjúkrunarfræðinga á bráðamóttökuna.