Hjörvar Hafliðason, íþróttastjóri Viaplay, var ánægður með sína menn, Hörð Magnússon og Kjartan Henry Finnbogason, sem lýstu úrslitaleik enska deildabikarsins í gær.
Manchester United og Newcastle mættust í úrslitaleik á Wembley og fór rauða liðið frá Manchester með sigur af hólmi, 2-0. Hörður Magnússon, einn reynslumesti íþróttalýsandi landsins, og Kjartan Henry, sem er tiltölulega nýr á þessum vettvangi, hafa lýst leikjum á Viaplay í sameiningu að undanförnu og staðið sig býsna vel.
Hjörvar sá ástæðu til að hrósa sínum mönnum á Twitter eftir leik í gær og voru margir sem tóku undir.
„Ànægður með daginn. Er ekki hlutlaus en Höddi og Kjartan frábærir saman. Besta commentary duo síðan....?,“ spurði Hjörvar.
Máni Pétursson, fjölmiðlamaður og fótboltaþjálfari, sagði að Hörður og Kjartan væru líklega þeir bestu síðan Logi Ólafsson og Hemmi Gunn lýstu Copa America á sínum tíma. „Það efni er enn til á spólum á sumum heimilum.“ Aðrir nefndu Heimi Karlsson og Einar Bollason sem lýstu leikjum NBA-deildarinnar á sínum tíma.
Takk fyrir alla hjálpina @JanAageFjortoft Gaman að fá Lars Lagerbäk fyrir leik með Eddie Howe.
— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) February 26, 2023
Ànægður með daginn. Er ekki hlutlaus en Höddi og Kjartan frábærir saman. Besta commentary duo síðan....? pic.twitter.com/qPlhKsHHeg