Tónlistarmaðurinn, leiðsögumaðurinn og Hafnfirðingurinn, Hjörtur Howser, er látinn, 61 árs að aldri. Aðstandendur Hjartar greindu frá þessu á Facebook í hádeginu og hafa fjölmargir sent þeim samúðarkveðjur.
„Elsku pabbi okkar og bróðir Hjörtur Howser yfirgaf þessa jarðvist snögglega við Gullfoss í gær Hann kvaddi við það sem honum fannst skemmtilegast – að sýna ferðamönnum fallega landið okkar,“ segir í færslunni.
Hjörtur var mörgum að góðu kunnur og á meðal fremstu hljómborðsleikara þjóðarinnar. Hann lék með hljómsveitum eins og Grafík, Kátum piltum og Vinum Dóra og þá lék hann um tíma með Mezzoforte og Fræbblunum. Einnig starfaði hann oft með Þórhalli Sigurðssyni, Ladda.
Á Wikipedia-síðu sem tileinkuð er Hirti kemur fram að hann hafi lært á píanó í einkatímum áður en hann hélt til framhaldsnáms í Bandaríkjunum og Svíþjóð. Hann lærði kvikmyndatónsmíðar og útsetningar í Kaliforníu en raftónsmíðar í Stokkhólmi.
Þá sinnti Hjörtur kennslu hjá Námsflokkum Hafnarfjarðar og gaf út kennsluefni í hljómborðsnámi.
Hjörtur var kjörinn sem varamaður í stjórn Leiðsagnar sem er stéttarfélag leiðsögumanna.