Hjörleifur: Hættan er ekki liðin hjá – „Hörmulegt vanmat á COVID-19“

„Í þeirri stefnubreytingu sem hér er verið að taka endurspeglast hörmulegt vanmat á þeim vágesti sem Covid-19 hefur sýnt sig að vera og sem leikur enn margar þjóðir grátt.“

Þetta segir Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Þar fjallar Hjörleifur meðal annars um kórónuveirufaraldurinn og aðgerðir yfirvalda til að stemma stigu við útbreiðslu veirunnar hér á landi.

Hjörleifur segir að ánægjulegt hafi verið að fylgjast með aðgerðum stjórnvalda að undanförnu, ákvarðanir hafi byggt á ráðgjöf sóttvarnalæknis, landlæknis og fleiri sérfróðra í samvinnu við lögregluyfirvöld. Bendir hann á að bólusetning sé hafin en takmarkað framboð á bóluefni hafi seinkað áætlunum stjórnvalda um að hún nái til meirihluta landsmanna um mitt ár.

„Flestum að óvörum gerðist það 17.-18. mars sl. að dómsmálaráðherra breytti með samþykki ríkisstjórnarinnar gildandi reglugerð nr. 866/2017 um takmarkanir á för 3. ríkis borgara yfir ytri landamæri þannig að þau nái ekki til einstaklinga með fullnægjandi bólusetningarvottorð, einnig varðandi einstaklinga utan Schengensvæðisins. Fyrir liggur að ekkert samráð var haft við sóttvarnalækni um þessa reglugerðarbreytingu, eins og tilskilið er í 12. grein sóttvarnarlaga sem kveður á um sóttvarnarráðstafanir vegna hættu á farsóttum innanlands.“

Hjörleifur telur ljóst af málflutningi ráðherra Sjálfstæðisflokksins að þessi reglugerðarbreyting sé knúin fram að kröfu leiðandi talsmanna ferðaþjónustunnar í þeirri trú að með henni verði bjargað rekstrarvanda fyrirtækja í greininni í sumar.

„Ekki er að efa að margir útlendingar munu, vegna þess fyrirkomulags sem hér er verið að opna fyrir, kjósa að leggja leið sína til Íslands. Hitt er vandséðara hvernig tryggt verði að landamæraeftirlit og sóttvarnayfirvöld eigi að tryggja að veiran í sínum ýmsu afbrigðum berist ekki inn í landið með ferðamönnum, þrátt fyrir umrædd formleg skilyrði.“

Hann segir að boðuð opnun landsins fyrir ferðamannastraumi út á alþjóðleg bólusetningarskírteini sé tekin þrátt fyrir augljósa seinkun á bólusetningu fólks innanlands fram eftir sumri.

„Með því er augljóslega tekin mikil áhætta á bakslagi í kjölfar veirusmits hér innanlands og ráðstafana sem grípa yrði til af þeim sökum. Fari svo væri ferðaþjónustu sem atvinnugrein síður en svo greiði gerður vegna tilheyrandi röskunar, uppsagna og lokunar. Jafnframt er verið að taka mikla áhættu að glutra niður á lokametrunum þeim góða árangri og orðstír sem land og þjóð hefur áunnið sér með markvissum aðgerðum síðustu misseri. Í þeirri stefnubreytingu sem hér er verið að taka endurspeglast hörmulegt vanmat á þeim vágesti sem Covid-19 hefur sýnt sig að vera og sem leikur enn margar þjóðir grátt.“