Hjörleifur Hallgríms Herbertsson, fyrrverandi ritstjóri Vikudags á Akureyri og kosningastjóri Flokks fólksins, er allt annað en sáttur við ásakanir þriggja kvenna í forystusveit flokksins.
Málfríður Þórðardóttir, Tinna Guðmundsdóttir og Hannesína Scheving, sem skipa sæti ofarlega á lista Flokks fólksins á Akureyri, sögðu á blaðamannafundi í gær að Hjörleifur hefði áreitt þær kynferðislega og margítrekað. Flokkurinn hefur logað stafnanna á milli og ásakanir gengið á víxl.
Í samtali við Fréttablaðið í dag svarar Hjörleifur ásökununum fullum hálsi.
„Þetta er tóm lygi, þessar konur eru svikakvendi, en aftur á móti hef ég haft í flimtingum oftar en einu sinni að ég hafi aldrei tekið á konu nema undir sæng við eðlilegar aðstæður. En það er helber lygi að ég hafi beitt þær ofbeldi.“
Guðmundur Ingi Kristinsson, varaformaður Flokks fólksins, sagði við Fréttablaðið í gærkvöldi að stjórn flokksins þyrfti að klára málið.
„Já, það virðist ljóst að þessi áhöfn geti ekki unnið saman eftir það sem á undan er gengið.“
Spurður um þau ummæli Jóns Hjaltasonar að hann og Brynjólfur muni hætta í flokknum og ganga óháðir til leiks í bæjarstjórn ef Guðmundur Ingi og Inga Sæland biðji þá ekki afsökunar á ummælum og inngripum, segir Guðmundur Ingi:
„Ég mun ekki biðjast afsökunar á einu né neinu. Ef þeir vilja segja sig úr flokknum er það þeirra mál.“
Nánar er fjallað um málið á vef Fréttablaðsins.