„Þetta fólk er heppið að búa í sæmilega friðsömu landi án blóðsúthellinga, því minnast má á drápin í Danmörku sem múslímar frömdu vegna skopmynda af Múhameð spámanni í blaði þar og þá þyrfti enginn að kemba hærurnar.“
Þetta segir Hjörleifur Hallgríms, eldri borgari á Akureyri, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Hjörleifur er ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum en í Morgunblaði dagsins skrifar hann um brjóstamyndina af Jesú sem var mikið í umræðunni fyrir skemmstu.
Hjörleifur rifjar upp að hann hafi ungur að árum byrjað að sækja sunnudagaskóla í Akureyrarkirkju. Þar var hann gerður að bekkjarstjóra og var hlutverk hans meðal annars að útdeila biblíumyndum til barnanna. Segir hann að strax í æsku hafi ímynd hans af frelsaranum verið nákvæmlega eins og biblíumyndirnar sýndu hann – góðlegur karlmaður með sítt hár og skegg.
„Fyrir nokkru gerðist það svo að nokkrir kirkjunnar þjónar stóðu fyrir birtingu og áróðri sem fólst í afskræmdum myndum sem áttu að tákna frelsarann og voru í líki stelpugopa með konubrjóst, málaðar varir og kinnalit. Þessari afskræmingu var ætlað að höfða til barna og allt í boði Agnesar biskups! Þvílík smán og ógeðslegheit og ekki nóg með það, heldur var skrípamyndinni klesst á strætisvagn sem ók með þennan ófögnuð um borgina, trúlega í boði borgarstjórans, Dags B.“
Hjörleifur segir að honum hafi ekki verið skemmt og verið hugsað til biblíumyndanna frá bernskuárunum.
„Að fullorðið fólk, og þar að auki prestslært og kirkjunnar þjónar, skuli leyfa sér það sem ég kalla guðlast er með öllu óskiljanlegt og það sem verra er; biskupinn yfir Íslandi er þar í fararbroddi,“ segir Hjörleifur sem segir meðal annars að lokum: „Þó er þarna fólk nafngreint sem ég og fleiri hafa alla tíð haft lítið álit á enda kemur það berlega í ljós núna að því er ekki sjálfrátt og ef Agnes biskup væri einhver manneskja myndi hún skila hempunni með hraði.“