Hjördís Árnadóttir, sem titlar sig sem útbrunninn eftirlaunaþega, lofsamar Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, í opnu bréfi sem birtist í Fréttablaðinu í gær.
„Byrði þín er þung! Okkur er kennt að það þurfi fjölmarga kerfiskarla og undirtyllur af öllum kynjum til að bera slíka byrði. En óbilandi barátta þín um réttlátt líf fyrir alla kann á endanum að slá þá rangtúlkun út af borðinu,“ segir Hjördís.
Hún segir að Sólveig Anna sé hetja hvunndagsins sem auðvaldinu stendur stuggur af. Auðvaldi sem hefur fengið allt upp í hendurnar, meðal annars með því að blóðmjólka hvunndagshetjur samfélaga, halda þeim niðri og traðka á þeim.
„Við getum tekið „Qatar“ sem dæmi. Dæmi sem hefði átt að vekja fremur en svæfa. En það hentar auðvaldi heimsins að nota blóraböggla til að fela sinn eigin skít. Ég hef fylgst með þér frá upphafi þess er þú ákvaðst að berjast fyrir réttlátum jöfnuði og hagsæld til alla. Ég hef fylgst með hvernig þú ert barin niður með oft ógeðfelldum aðferðum. Barin niður af auðvaldinu, fjölmiðlavaldinu, almenningi og jafnvel þínum eigin samherjum.“
Hjördís segir að eitt einkenni Sólveigu Önnu.
„En þú stendur jafnharðan upp, oft illa lemstruð og kvalin, hristir af þér drulluna og krefst réttlætis , jafnræðis og virðingar fyrir öllu lífi. Það þolir auðvaldið illa og svífst einskis til að kæfa rödd þína. Fyrir mér er rödd þín rödd lítilmagna þessa lands, hvort sem þeir eru innan Eflingar eða ekki og sú rödd þarf að heyrast. Takk fyrir að gefast ekki upp þó móti blási 50/60 metrar á sekúndu. Baráttukveðjur fyrir réttlátum heimi.“