Bandarískur ferðamaður segir að hann og eiginkona sín hafi verið svikin um hundruð þúsunda íslenskra króna þegar þau ferðuðust til landsins í september síðastliðnum af Íslendingi sem hafi gefið sig út fyrir að vera leiðsögumaður. Hann hafi lofaði endurgreiðslu en svo ekki staðið við það.
Þetta kemur fram í viðtali Fréttablaðsins við ferðamanninn Greg Wendelken.
Greg komst í samband við íslenska manninn í gegnum samfélagsmiðla árið 2020. Segir Greg Íslendinginn hafa boðið sér þjónustu gegn því að fá greitt fyrir. Greg segist hafa skilið það þannig að um væri að ræða peninga fyrir gistingu og leiðsögn á staði sem þau hjón vildu heimsækja á landinu.
„Ég kynntist honum í gegnum þennan hóp þar sem fólk lýsir sinni upplifun frá Íslandi,“ segir Greg við Fréttablaðið. Sjálfur vakti hann athygli á málinu á umræddum Facebook hópi túrista á Íslandi þar sem hann nafngreinir manninn og varar aðra í hópnum við honum. Greg segir að viðbrögð lögregluyfirvalda hérlendis við ábendingum vegna málsins hafi verið lítil.
Greg fékk töluverð viðbrögð við færslunni. Leggja nokkrir túristar orð í belg og segjast einnig hafa lent í manninum. „Ég held þetta verði erfiðara fyrir hann núna því hann virðist vera búinn að svíkja svo marga,“ segir Bandaríkjamaðurinn sem lagði upprunalega rúmar 700 þúsund krónur inn á manninn sem fór svo fram á að fá 140 þúsund krónur til viðbótar þegar Greg og eiginkona hans Nancy Jones voru mætt til landsins.
„Ég hafði samband við hann og hann sagði mér að hann væri leiðsögumaður. Hann spurði mig hversu marga daga ég vildi ferðast um landið og hverskonar gistingu ég vildi og svo framvegis. Hann kvað þetta ekkert mál og fór fram á að ég sendi honum pening sem ég gerði í gegnum PayPal, aðeins yfir 5000 Bandaríkjadollurum fyrir tíu eða ellefu nætur af gistingu, ferðir og bílaleigubíl í tólf daga.“
Þetta hafi verið um fjórum mánuðum fyrir ferðalag þeirra til landsins sem var í september. Greg segir að fyrstu merkin um að ekki allt væru með felldu hafi verið þegar hann hafi komist að því að Íslendingurinn hefði leigt Porsche Cayenne jeppa fyrir hjónin.
Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni á vef Fréttablaðsins hér.