Landsréttur dæmi í dag mann í tveggja ára fangelsi og staðfesti sex mánaða skilorðsbundinn dóm yfir konu fyrir brot gegn dætrum sínum. Maðurinn og konan voru hjón þegar brotin voru framin.
Fréttablaðið fjallar um málið.
Maðurinn var sakfelldur fyrir stórfelld brot gagnvart dætrum sínum með því að hafa endurtekið á alvarlegan, sársaukafullan og meiðandi hátt ógnað lífi dætranna með líkamlegu og andlegu ofbeldi.
Maðurinn hlaut einnig dóm fyrir líkamsárás gegn þáverandi eiginkonu sinni, móður dætranna, en hún hlaut einnig dóm fyrir líkamsárásir gegn þremur dætrum sínum.
Ákæruliðirnir í málinu eru fjölmargir og eru ofbeldislýsingarnar í þeim ef til vill ekki fyrir viðkvæma.
Maðurinn var ákærður fyrir að slá dætur sínar í hendur, fætur, bak, rass, háls og andlit. Þá notaði hann ýmist belti, skó, flatan lófa, herðatré, leikfangapíanó, föt og eftir atvikum því sem hendi var næst.
Eftir að málið kom upp sendi maðurinn einni dótturinni skilaboð á Messenger. Skilaboðin voru tíð en í þeim stóð meðal annars: „Manstu þetta enn þá,“ „hvar ertu,“ „ég veit hvar þú ert,“ „kíktu út í glugga eftir 15 mínútur, þá sérðu mig fyrir utan,“ og „bara þú veist og ég segi þetta aftur, ég kem í draumana þína, ég kem inn undir buxurnar þínar, ég veit allt um þig og er að fylgjast með þér.“
Ítarlegri umfjöllun má finna hjá Fréttablaðinu.