Hjól­reiðar­maðurinn sem varð fyrir árás ökumanns stígur fram: „Ég var á á­gætis hraða og var ekki að tefja hann með neinum hætti“

Margeir Steinar Ingólfs­son, betur þekktur sem DJ Margeir, varð fyrir fólsku­legri líkams­á­rás á Lauga­veginum í gær­kvöldi.

Frétta­blaðið greindi frá því í gær að lög­reglan sé ekki að rann­saka málið sem um­ferðar­ó­happ heldur líkams­á­rás.

„Þetta er ekki rann­sakað sem um­­­ferðar­ó­happ. Það eru til rann­­sóknar brota­­flokkar sem snúa að því að lífi eða heilsu annarra er stofnað á aug­­ljósan hátt til gáska,“ segir Ás­­geir.

Í við­tali við DV segir Margeir frá á­rásinni en hann var hjólandi milli tveggja bíla þegar hann varð var við að öku­maður aftari bílsins fór að þenja bílinn í aug­ljósum pirringi.

„Ég var á á­gætis hraða og var ekki að tefja hann með neinum hætti. Fyrir framan mig var auk þess annar bíll þannig að hann hafði ekki komist leiðar sinnar þó að ég hefði vikið,“ segir Margeir.

Öku­maðurinn keyrir síðan aftan á hjól Margeirs þannig að hann hentist af hjólinu og í götuna. „Mér brá náttúru­lega veru­lega en náði svo áttum, stóð upp og gekk að bílnum til að ræða við öku­manninn og hvað honum hefði gengið til,“ segir Margeir.

Öku­maðurinn gaf þá í og keyrði yfir hjól Margeirs til að komast leiðar sinnar. Þar sem allir vegir voru honum lokaðir keyrði hann inn göngu­götuna á Lauga­veginum til að komast undan.

lessunar­lega slasaðist Margeir lítið í á­rásina og hann var á­nægður með við­brögð gangandi veg­far­enda. „Ég er að­eins aumur í úln­liðnum en að öðru leyti slapp ég vel. Ég náði númerinu á bílnum og strax eftir at­vikið hópaðist að mér fólk sem bauð sig fram sem vitni í málinu,“ segir Margeir.

Sjónar­vottur sagði í sam­tali viðMorgun­blaðið að um aug­ljóst vilja­verk hefði verið að ræða.

Margeir mun gefa skýrslu hjá lög­reglu bráð­lega en segir að lög­reglan var ekki búinn að ná í manninn síðast þegar hann vissi en það væri í raun bara tíma­spurs­mál.