Hjól­reiða­fólk fær kaldar kveðjur: „Frekjur hjóla á ofsa­hraða yfir GANG­BRAUT“

Stak­steina­höfundur Morgun­blaðsins í dag liggur ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn en nú eru það hjól­reiða­menn sem fá að heyra það.

Blaðið gerir til­lögu Kol­brúnar Baldurs­dóttur, borgar­full­trúa Flokks fólksins, á fundi skipu­lags- og sam­göngu­ráðs borgarinnar í gær­morgun að um­tals­efni. Snerist til­lagan um að setja há­marks­hraða á göngu- og hjóla­stígum og að­liggjandi gang­stéttum til að tryggja öryggi hjólandi og gangandi.

„Hjól­reiðar hafa aukist og er það vel. Hins vegar hafa kvartanir einnig aukist sem lúta að hættu sem stafar af hjól­reiða­mönnum sem hjóla fram hjá gangandi veg­faranda eða hjól­reiða­manni á mikilli ferð,“ sagði Kol­brún.

Benti hún á að heimilt væri að hjóla á gang­stétt, göngu­stíg eða göngu­götu, enda valdi það ekki gangandi veg­far­endum hættu eða ó­þægindum eða liggi sér­stakt bann við því. Þá skuli hjól­reiða­maður gæta ýtrustu var­kárni og ekki hjóla hraðar en svo að hann geti vikið úr vegi fyrir gangandi veg­far­endum.

Að mati Kol­brúnar hefur skort á að borgar­yfir­völd birti og minni á reglur um hjól­reiðar. „Skortur er á við­eig­andi fræðslu og við­vörunum svo varast megi ó­höpp og slys. Slys hafa orðið og enn oftar legið við slysum þar sem hjólandi ekur fram hjá á miklum hraða og rekur sig í hjól­reiða­mann, eða gangandi veg­faranda eða hunda. Ekki er nóg að leggja hjól­reiða­stíga heldur verður yfir­vald einnig að sýna til­hlýði­lega á­byrgð og sinna fræðslu til að fyrir­byggja slys og ó­höpp.“

Ó­hætt er að segja að stak­steina­höfundur taki undir þetta í Morgun­blaðinu í dag.

„Þetta er rétt. Borgar­yfir­völd mála hjól á götur án þess að það hafi gildi að lögum. Stundum þvert yfir hefð­bundin bif­reiða­stæði. Frekjur hjóla á ofsa­hraða yfir GANG­BRAUT og ætlast til að bif­reiðar hvellstöðvi. Þekktar reglur um gang­brautir eru komnar í graut fyrir til­verknað yfir­valda.“