Dr. Inga Dóra Björnsdóttir, mannfræðingur og pistlahöfundur á vefnum Lifðu núna, segir frá skondnu atviki sem kom fyrir hana og eiginmann hennar ekki alls fyrir löngu. Þetta gerir hún í skemmtilegum pistli á vef Lifðu núna.
Þannig er mál með vexti að Inga Dóra og eiginmaður hennar búa í Kaliforníu og hefur eiginmaður hennar hjólað í vinnuna í 37 ár.
„Á sextíu og fimm ára afmæli hans ákvað ég að gefa honum nýtt hjól, hjól með breiðum og góðum dekkjum, þægilegu sæti, góðum gírum og góðu stýri. Í maí síðastliðinn þurfti hann að fara með mér í tannaðgerð en varð seinn fyrir, hentist heim á hjólinu, lagði því í hjólagrindina fyrir framan húsið okkar og brunaði með mig til tannlæknisins,“ segir Inga.
Ekki vildi betur til en svo að hjólinu var stolið þar sem hann gleymdi að læsa því. Þeim hjónum að óvörum skildi þjófurinn eftir annað hjól í grindinni, hjól af gerðinni Fuji sem var létt og nett að sjá.
Maður Ingu spurðist fyrir um hjólið hjá nágrönnum en enginn kannaðist við það. Næsta skref var að hafa samband við lögreglu og tilkynna stuldinn og fundinn á hinu hjólinu. Engar upplýsingar um hjólið var að finna í gagnagrunni lögreglu og var því engin leið að finna eigandann.
„Lögreglan sagði manninum mínum að koma með hjólið á lögreglustöðina til geymslu í þrjá mánuði. Ef enginn gæfi sig fram sem eigandi þess á þessum þremur mánuðum yrði hjólið hans eign, en hér gildir sú gamla góða regla, að sá á fund sem finnur ef enginn kemur eigandinn,“ segir Inga Dóra.
Svo fór að enginn gaf sig fram og hafði lögregla loks samband þremur mánuðum síðar og bað eiginmann Ingu að sækja hjólið sem væri nú hans eign.
„Þegar maðurinn minn sótti hjólið sagði lögreglumaðurinn, sem afhenti honum það, að þeir hefðu aldrei haft jafn flott hjól í sinni vörslu og bætti því við, að hann yrði alltaf að taka það inn með sér á skrifstofuna og loka það inni í bílskúrnum heima. Ef hann gerði það ekki yrði því stolið fljótt aftur. Og er það nema von. Maðurinn minn komst að því að nýtt hjól af sömu gerð kostar um 5000 dali, eða tólf sinnum meira en hjólið hans sem hvarf,“ segir hún.
Inga segir að eiginmaður hennar gæti hjólsins vel og hafa þau hjón grínast með það að skilja hybrid Honduna eftir opna í innkeyrslunni með lyklana í kveikjulásnum, „í von um að bílaþjófur á Teslu skipti henni út fyrir Honduna gömlu.“