Hjólaði í Guðmund fyrir peysu sem kostar 22.900 krónur – Guðmundur lét ekki bjóða sér það

Guðmundur Jörundsson fatahönnuður er með munninn fyrir neðan nefið. Það sýndi hann þegar hann svaraði manni fullum hálsi, en sá hafði gagnrýnt verðið á fatnaði frá honum.

Guðmundur birti skjáskot af skilaboðunum á Twitter-síðu sinni þar sem hann er mjög virkur. Umrædd auglýsing birtist á Facebook-síðu tískuverslunarinnar JÖR sem opnaði á nýjan leik síðasta haust. Í færslunni voru auglýstar fallegar peysur úr lambsull sem kosta 22.900 krónur.

Eins og oft vill verða þegar fyrirtæki auglýsa vörur sínar til sölu koma athugasemdir um verðið á þeim. Ein þeirra var einmitt svona: „22.900 fyrir peysu? Afsakið, en það er bara rugl.“

Guðmundur var ekki lengi að bregðast við þessari athugasemd og lét hann ekki bjóða sér að vera sakaður um okur fyrir gæðavöru.

„Hæhæ, nei það er það nú ekki. Þetta verð er u.þ.b 20-40% lægra en peysur í sambærilegum gæðaflokki. Flestar 100% lambsullarpeysur eru á bilinu 28.000 – 32.000 kr.

En ef þú ert að bera þetta saman við massaframleiddar peysur úr gerviefnum (þar sem fólk sem vinnur í verksmiðjum fær að jafnaði 24 dollara í mánaðarlaun) þá er þetta vissulega miklu dýrara, en endist auðvitað um leið miklu lengur.

Hugmyndir fólks um verð á fatnaði er það sem er rugl og að aðrir í heiminum skuli þjást við framleiðslu á þínum fatnaði er bæði mannréttindabrot og mannvonska.“