Hjóla í Jón fyrir að taka á móti flótta­fjöl­skyldu: „Mér er svo mis­boðið að ég veit ekki hvar ég á að byrja“

Net­verjar virðast ekki allir sáttir með að Jón Gunnars­son, dóms­mála­ráð­herra, hafi á­kveðið að hýsa flótta­fjöl­skyldu frá Úkraínu á heimili sínu.

Margir hverjir keppast nú við að finna nei­kvæðar hliðar á málinu og segja hann sé að nota sér neyð fólksins í pólitísku skyni.

Kol­brún Helga spyr meðal annars á Twitter hvort Jón hefði „boðið þeim inn ef þau væru múslimar eða með annan húð­lit?“ og svarar svo sjálf með „veit ekki“

Þá virðast nokkrir sann­færðir um að svarið við spurningu Kol­brúnar sé nei.

„Var ein­mitt að hugsa hversu skítt það væri að nota þetta stríð og eymdina sem er að skapast til að plögga fyrir næstu kosningar og hylma yfir karlpunga­við­horfið í kyn­ferðis­brota­málum,“ skrifar Sig­rún.

„Þetta photo-op situr klár­lega eitt­hvað í mer,“ skrifar Júlíana Kristín.

Þá er Heiða Björk sann­færð um að „þetta sé rotið“ hjá honum Jóni

Ragna Georgs kemur ein Jóni til varnar og segir þessar færslur aumingja­legar.

„Ég vona inni­lega að eitt­hvert ykkar hafi opnað heimili sín fyrir flótta­mönnum,“ skrifar Ragna.

Sól­ey Tómas­dóttir, fyrr­verandi borgar­full­trúi Vinstri-grænna, er hins ekki sátt með Jón

„Mér er svo mis­boðið að ég veit ekki hvar ég á að byrja“