Hjartnæmir endurfundir hjá Guðmundi Felix: Gat loksins faðmað dótturina

Lífið leikur við Guðmund Felix þessa dagana en ríflega átta mánuðir eru nú liðnir frá því að græddir voru á hann tveir handleggir í 14 klukkustunda maraþonaðgerð í Lyon í Frakklandi. Með hverjum degi virðist hann verða betri og nær sífellt meiri stjórn á nýju handleggjunum.

Það nýtti hann heldur betur þegar hann fékk dóttur sína og barnabörn í heimsókn til hans í Frakklandi á dögunum. Á Facebook birtir hann þrjár myndir af endurfundunum og spiluðu nýju handleggirnir lykilhlutverk.

„Mynd 1 – Að faðma 24 ára dóttur mína í fyrsta sinn frá því að hún var þriggja mánaða gömul. Mynd 2 – Að faðma 5 ára barnabarn mitt í fyrsta sinn FRÁ UPPHAFI. Mynd 3 – AÐ HITTA eins árs barnabarn mitt í ALLRA FYRSTA SKIPTIÐ,“ skrifar Guðmundur við færsluna.

Guðmundur Felix hafði verið án handleggja frá árinu 1998 þar sem hann missti þá í vinnuslysi en rúmlega tveggja áratuga bið lauk loksins í upphafi árs. Óhætt er að segja að hann hafi nýtt tímann vel en hann greinir reglulega frá árangri sínum á samfélagsmiðlum.

Myndirnar af endurfundunum má finna hér fyrir neðan.