Hjartnæm ummæli níu ára stúlku: „Ég elska Ísland ... Líka þegar það er kalt úti“

„Mig langar bara að segja að ég elska Ísland. Viltu segja í blaðinu að ég elski Hvassaleitisskóla og Ísland. Líka þegar það er kalt úti. Og að ég vilji ekki að lögreglan komi og taki mig.“

Þetta segir hin níu ára gamla Estefanía í samtali við Fréttablaðið.

Estefanía bíður nú brottvísunar frá Íslandi ásamt fjölskyldu sinni, en þau flúðu frá Kólumbíu og sóttu um vernd á Íslandi fyrir rúmu ári síðan. Þau þrá ekkert frekar en að fá að tilheyra öruggu samfélagi.

Rætt var við Estefaníu og foreldra hennar í Fréttablaðinu í dag.