Hjalti Úrsus ætlar alla leið: „Þetta er ekkert grín“ – Undirbýr risamál

Hjalti Úrsus Árnason, fyrrverandi aflraunamaður, segir að hann og sonur hans, Árni Gils Hjaltason, séu að undirbúa risastórt skaðabótamál eftir að Árni var sýknaður í Landsrétti af ákæru um tilraun til manndráps.

Þetta segir Hjalti í samtali við Vísi en dómur var kveðinn upp í dag.

Rúm vika er síðan Hringbraut fjallaði um mál Árna Gils en þá hafði Hjalti skrifað harðorða grein í Morgunblaðið vegna málsins sem hefur flakkað um dómskerfið undanfarin fimm ár. Árni var dæmdur í fjögurra ára fangelsi árið 2019 fyrir tilraun til manndráps en Hjalti benti á að sonur hans hefði verið í gæsluvarðhaldi og einangrunarvist í 277 daga. Nú liggur niðurstaða áfrýjunar fyrir og hefur Árni verið sýknaður.

„Að taka fimm ár af svona ungum manni, svona stórum og miklum manni. Allir þekkja hann hvert sem hann kemur, og hugsa „þarna er morðinginn“. Þetta er ekkert grín,“ sagði Hjalti við Vísi eftir að niðurstaða lá fyrir.

Hann segir að Árni sonur hans hafi ekki þorað að vera viðstaddur dómsuppkvaðninguna í dag en Hjalti hringdi í hann eftir að niðurstaða lá fyrir. Hefur Árni verið eitt bros síðan, að sögn Hjalta.

Þeir feðgar undirbúa nú skaðabótamál enda telur Hjalti að Árni hafi orðið fyrir óafturkræfu tjóni sem ómögulegt er að bæta fyrir.

„Við erum að undirbúa risaskaðabótamál í Geirfinnsstíl,“ segir Hjalti við Vísi.