Hjalti Már hjólar í biskup: „Mun þögn Þjóð­kirkjunnar senda tvo menn í fangelsi?“

Hjalti Rúnar Ómars­son, sem situr í stjórn Van­trúar, kemur bræðrunum Einari og Ágúst Arnar sem kenndir eru við trú­felagið í Zu­ism til varnar í nýjum pistli á Vísir.is

„Nú standa yfir réttar­höld yfir tveimur mönnum sem verða mögu­lega dæmdir í þriggja ára fangelsi. Í á­kærunni er glæpur þeirra sagður sá að svíkja „fjár­fram­lög úr ríkis­sjóði“ og valda „ís­lenska ríkinu veru­legri fjár­tjóns­hættu og fjár­tjóni í reynd“. Þessi meintu fjár­fram­lög úr ríkis­sjóði voru sóknar­gjöld,“ skrifar Hjalti.

„Í hvert einasta skipti sem rætt hefur verið um upp­hæð sóknar­gjalda á Al­þingi hefur yfir­stjórn Þjóð­kirkjunnar, með biskup í farar­broddi, mót­mælt því harð­lega að sóknar­gjöld séu fram­lög úr ríkis­sjóði,“ bætir hann við.

Þjóð­kirkjan heldur því stað­fast­lega fram að þetta séu þvert á móti fé­lags­gjöld, sem ríkið er einungis að inn­heimta fyrir hönd trú­fé­laganna, segir Hjalti og vitnar í ný­lega um­sögn biskups­stofu við fjár­lög sér til varnar.

„(Þar) var meira að segja full­yrt að nú­verandi fjár­mála­ráð­herra hefði viður­kennt að lækkun sóknar­gjalda væri „í­gildi fjár­dráttar eða þjófnaðar“ - það er að segja að ríkið væri að stela peningum Þjóð­kirkjunnar!“

„Ef það er rétt, þá eru þessir tveir menn sak­lausir. Þá voru engin fram­lög úr ríkis­sjóði svikin út og ekkert fjár­tjón sem ís­lenska ríkið varð fyrir. Þá fengu þessir menn ein­fald­lega fé­lags­gjöld frá með­limum í fé­laginu þeirra, sem ríkið inn­heimti fyrir þá.“

Um þetta hefur verið deilt í réttar­höldunum yfir Einari og Ágústi. Sak­sóknarinn segir að það sé „lífs­seigur mis­skilningur að ríkið inn­heimti sóknar­gjöld“, heldur sé í reynd „um að ræða styrki til trú­fé­laga sem greiddir séu af al­mennu skatt­fé“.

Verjandinn mót­mælti og sagði að ríkið „átti senni­legast aldrei neitt til­kall til þessara peninga“, sem er satt og rétt, **ef** sóknar­gjöld eru fé­lags­gjöld.

„Af hverju hefur ekkert heyrst frá Þjóð­kirkjunni til varnar þessum mönnum? Jafn­vel þó yfir­stjórn Þjóð­kirkjunnar sé sama um hvort þessir menn muni dúsa nokkur ár í fangelsi eða ekki, hlýtur hún að mót­mæla því að núna verði fest með dómi að sóknar­gjöld séu ríkis­styrkir en ekki fé­lags­gjöld.“

„Reyndar eru til ein um­mæli frá Agnesi biskupi um þetta mál úr við­tali (áður en þetta varð að dóms­máli). Hún sagði að þarna hefði fólk séð „mögu­leika á því að fá fjár­magn frá ríkinu“. Þau um­mæli benda reyndar til þess að Agnes líti á sóknar­gjöld sem fram­lög frá ríkinu, en ekki fé­lags­gjöld.“

„Þannig að hugsan­lega má skilja þögn Þjóð­kirkjunnar sem svo að þau viti vel að þetta séu fram­lög frá ríkinu, en ekki fé­lags­gjöld, og að full­yrðingar þeirra um “fé­lags­gjöld" séu einungis notaðar þegar Þjóð­kirkjan reynir að rétt­læta hærri fram­lög frá ríkinu. Er þögn Þjóð­kirkjunnar sam­þykki?“ skrifar Hjalti að lokum.