Hjalti læknir mælir ekki með Parkódíni: „Þetta er með verri þvælu sem ég hef séð lengi“

COVID-19 sjúklingar geta nú fengið afhentar 10 töflur af Parkódíni í apóteki án lyfseðils. Framvísa þarf vottorði úr Heilsuveru sem staðfestir smit. Um er að ræða undanþáguráðstöfun sem gildir til 18. apríl.

Hjalti Már Björnsson, læknir á bráðamóttöku Landspítalans, er ekki par sáttu:

„Þetta er með verri þvælu sem ég hef séð lengi. Parkódín slær EKKI vel á hósta samkvæmt rannsóknum. Það er ávanabindandi ópíóíði og hættulegt börnum,“ segir hann á Twitter.

„Því mæli ég EKKI með því að taka Parkódín við hósta.“

Hjalti býður upp á einfaldara ráð:

„Ef einhver vill ráð við hósta er best, eins og alltaf, að hlusta á vísindin. Rannsóknir hafa sýnt að eitt besta ráðið er einfaldlega hunang.“