Hjalti: „Ég óttast að einn góðan veður­dag munum við standa uppi með verð­lausar eignir“

Hjalti Jón Sveins­son, skóla­meistari og eig­andi hest­húss í Víði­dal, óttast að hann og fleiri hest­húsa­eig­endur muni standa uppi með verð­lausar eignir. Hjalti viðrar þessar á­hyggjur sínar í að­sendri grein í Morgun­blaðinu í dag.

„Mér varð það á fyrir fimm árum, þegar ég flutti til Reykja­víkur eftir langa fjar­veru, að kaupa hest­hús þar án þess að gera mér grein fyrir að lóðar­leigu­samningurinn til 25 ára frá árinu 1970 var löngu runninn út. Staða mín er því sú sam­kvæmt samningnum að hann fram­lengist sjálf­krafa um tvö ár sé honum ekki sagt upp. Þá hvílir sú kvöð á mér að ef til þess kæmi beri mér að afmá öll um­merki um að þarna hafi ein­hvern tímann staðið hest­hús,“ segir Hjalti í grein sinni.

Hann segir að það gefi auga leið að öryggi þeirra sem eru í þessari stöðu sé ekki meira en skilja má á orðanna hljóðan.

„Þetta gæti þýtt að von­laust sé að selja þessi hest­hús til þeirra sem vilja slást í hópinn þegar við, sem eldri erum, kjósum að draga okkur í hlé eða minnka við okkur, eins og sagt er. Ég óttast að einn góðan veður­dag munum við standa uppi með verð­lausar eignir. Þessar að­stæður gera það einnig að verkum að við förum tæp­lega í kostnaðar­samar endur­bætur á húsum okkar.“

Hjalti segist hafa kosið Víði­dalinn á sínum tíma þar sem hann hafði stundað hesta­mennsku og út­reiðar á árum áður. Það sem vó hvað þyngst var þó að svæðið býður út­reiðar­fólki upp á marga mis­munandi kosti og þá liggi leiðir frá svæðinu um víðan völl.

Hann segir að á þessu fimm ára tíma­bili hafi byggðin austan við hest­húsa­hverfið stækkað í áttina að Víði­dalnum. „Því er ekki skrítið að maður fari að hugsa sinn gang og spyrji þeirrar spurningar hvort að því geti komið þegar síst varir að við hest­húsa­eig­endur þurfum að hirða pjönkur okkar í Víði­dalnum og láta okkur hverfa eða að hasla okkur völl með tvær hendur tómar í Al­manna­dal.“

Hjalti vísar í við­tal Morgun­blaðsins við Dag B. Eggerts­son borgar­stjóra þann 6. nóvember síðast­liðinn og segir hann að ekkert sé í kortunum sem bendi til þess að breyting verði á skipu­lagi svæðisins á næstunni og því séu á­hyggjur hans ó­þarfar. Sagði Dagur meðal annars að Víði­dalurinn sé og verði í hans huga para­dís hesta­manna og heima­völlur hesta­í­þróttarinnar um fyrir­sjáan­lega fram­tíð.

„Ég spyr: Ef sú er raunin sem borgar­stjóri lýsir hér; af hverju er þá ekki unnt að finna leið að samningum milli borgarinnar og hest­húsa­eig­enda í Víði­dal sem tryggja sann­girni og jafn­ræði? Sjálfur geri ég ekki endi­lega kröfu um samning til 50 ára, ef það er málið, en ég tel mestu skipta að sett verði í samninginn á­kvæði um upp­kaup ef vera kynni að húsin þyrftu að víkja fyrir í­búða­byggð,“ segir Hjalti sem leggur til að aðilar setjist niður og komist að sam­komu­lagi sem báðir aðilar geta unað við.