Hjálmtýr sakar RÚV um tvískinnung: Af hverju að banna Rússa en ekki Ísraelsmenn?

Hjálmtýr Heiðdal hefur sent bréf á Stefán Eiríksson útvarpsstjóra fyrir hönd stjórnar Félagsins Ísland – Palestína þar sem hann sakar RÚV um tvískinnung og spyr hver munurinn sé á Rússum og Ísraelsmönnum.

Í bréfinu sem birt er á Facebook og fjallað er um á Vísieru rifjuð upp orð Felix Bergssonar, sem situr í stýrihópi Eurovision, frá því í Kastljósi í febrúar um að auðvitað sé reynt að halda Eurovisionkeppninni sem ópólitískri. „En núna var mönnum hreinlega nóg boðið,“ sagði Felix um hvers vegna RÚV væri á móti því að Rússar tækju þátt.

Hjálmtýr setur spurningamerki við að það sama eigi ekki við um Ísrael. „Ekkert land hefur fengið jafn margar ávítur hjá SÞ og Ísrael fyrir brot á samþykktum samtakanna og brot á alþjóðasamþykktum.“

Spurningarnar eru svo í nokkrum liðum:

  • Hver er munurinn á „hryllingnum í Úkraínu“ og framferði Ísraelshers í landi Palestínumanna að áliti stjórnenda RÚV?
  • Getur stjórn RÚV upplýst hvers vegna RÚV styður þátttöku Ísraels í ljósi þess að það ríki hefur í áratugi stundað mannréttindabrot í trássi við samþykktir SÞ og fleiri alþjóðasamtaka, en á síðan frumkvæði, ásamt öðrum útvarpsstöðvum Evrópu, að brottrekstri Rússlands.
  • Hvers vegna er stjórnendum RÚV „greinilega ofboðið“ núna? Fer afstaða stjórnenda RÚV eftir því hver framkvæmir mannréttindabrot?
  • Mannréttindi eru réttindi allra - án undantekninga eins og skráð er í alþjóðasamþykktum.
  • Má vænta þess að stjórn RÚV endurskoði afstöðu sína til veru Ísraels í Eurovision í ljósi þess að RÚV hefur tekið afstöðu gegn mannréttindabrotum Rússlands?