Hjálmtýr rifjar upp ummæli Jónasar Kristjánssonar frá 1988 og segir þau hafa staðist tímans tönn

Hjálmtýr Heiðdal, formaður félagsins Ísland-Palestína, segir að orð sem Jónas Kristjánsson heitinn, ritstjóri til fjölmargra ára, skrifaði árið 1988 hafi staðist tímans tönn.

Hjálmtýr gerir málefni Ísraels og Palestínu að umtalsefni í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag en grunnt hefur verið á því góða þar á milli að undanförnu.

Vopnahlé tók gildi á sunnudagskvöld en meiriháttar átök höfðu staðið yfir á Gasaströndinni dagana þar á undan. Gerði Ísraelsher meðal annars loftárás á byggingu í miðborg Gasa og var árásin gerð til að ráða niðurlögum Taysirs al-Jabari, liðsforingja í hernaðarvæng PIJ. Auk hans létust að minnsta kosti átta í árásunum, þar á meðal fimm ára gömul stúlka.

Í grein sinni rifjar Hjálmtýr upp gömul skrif Jónasar þar sem hann sagði:

„Hryðju­verka­ríkið Ísrael er orðið al­var­legt vanda­mál og á eftir að versna … Ógnanir eru nefni­­lega eina um­gengnis­venjan, sem Ísraels­ríki kann.“

Hjálmtýr segir:

„Þessi orð skrifaði Jónas Kristjáns­son rit­stjóri árið 1988. At­burðir síðustu daga sýna að orð rit­stjórans hafa staðist tímans tönn. Í sau­tján ár hafa Gazabúar búið í her­kví Ísraels­hers, á þessu tíma­bili hefur her Ísraels gert fjöl­margar á­rásir á inni­lokaða íbúa Gazastrandarinnar og drepið þúsundir og sært tug­þúsundir.“

Hjálmtýr bendir á að á Gasa, sem er um þriðjungur Reykjanesskagans að stærð, búi tvær milljónir Palestínumanna – þar af er um helmingur börn undir 18 ára aldri sem aldrei hafa upplifað frið.

„Frá árinu 2000 hefur Ísraels­her drepið 2.225 palestínsk börn, þar af 556 árið 2014 og 29 það sem af er þessu ári. Barna­morð Ísraels eru gerð í skjóli frá helstu ríkjum Vestur­landa sem veita bæði fé til hernaðar og vernd frá refsi­að­gerðum.“

Hjálmtýr gagnrýnir til að mynda fréttaflutning RÚV og segir að í fréttum sé sagt frá átökum á milli deiluaðila.

„Morð­á­rás sem einn af öflugustu herjum sam­tímans gerir á inni­lokað og vopn­laust fólk er ekki deila eða átök – barna­morðin eru ekki deila eða átök – þetta eru morð – barna­morð.“

Hjálmtýr vitnar svo í orð Stefanie Fox, framkvæmdastjóra friðarsamtaka gyðinga, sem sagði meðal annars að Palestínumenn búi við kúgun Ísraelsmanna alla daga ársins. Þegar Ísraelsmenn geri loftárásir á Gasa geti enginn sloppið eða flúið í öruggt skjól. Hvetur hann íslensk stjórnvöld til að bregðast við.

„Ríkis­stjórn Ís­lands og utan­ríkis­ráð­herra hljóta að for­dæma þessar á­rásir Ísraels á Palestínu – ríki sem Ís­land hefur viður­kennt.“