Skemmtikraftarnir Eva Ruža Miljevic og Hjálmar Örn Jóhannsson tilkynntu fyrr í vikunni að þau kæmu til með að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu um helgina til styrktar Ljósinu en tengdamóðir Hjálmars er þar í endurhæfingu eftir baráttu við krabbamein.
„Hjálmar Örn og Eva Ruža eru ekki þekktir hlauparar- og hvað þá maraþonhlauparar. En eftir þetta hlaup munu allir þekkja þau í hlaupagallanum,“ segir í kynningunni við söfnunina. Þau segjast stefna á að safna tveimur milljónum en þau hafa safnað 28 þúsund krónum.
„Gæti orðið langur gangur að þessum 2 millz en við stefnum alltaf hátt með allt sem við gerum. Much appreciated fyrirfram,“ segir Eva í færslu á Facebook í dag. Eva og Hjálmar munu hlaupa ásamt Steinda Jr. einn kílómetra en fyrir það ætlar Eva að vera búin að hlaupa níu kílómetra.
„Hjálmar verður gríðarlegt stuðningsnet fyrir mig og Steinda, sem verðum líklegast bæði nærri dauða en lífi á tímapunktinum sem við sameinumst,“ segir hún enn fremur. „Ég verð með beina útsendingu á instagram- á meðan ég dreg andann í þessu hlaupi.“
Hægt er að heita á Evu og Hjálmar hér.