Samfélagsmiðlar hafa logað og margir hafa lýst yfir mikilli óánægju Klapp-app Strætó BS. Segir fólk að það hreinlega virki ekki og hafa heiðarlegustu menn hreinlega svindlað sér um borð vegna bilana í kerfinu.
Hjálmar Sveinsson, stjórnarformaður Strætó og borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, sagði í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun að verið sé að vinna að lagfæringu og um sé að ræða „byrjunarörðugleika“.
Ástæðurnar eru margvíslegar:
„Það er ýmislegt sem kemur til, það eru vandræði ekki síst út af skönnum sem skanna inn þegar þú setur klappkortið á og líka á appinu í gegnum síma og fyrir alls ekki löngu var gerð tölvuárás á Strætó og það tafði þetta,“ sagði hann.
Hjálmar vildi ekki segja hvenær þetta yrði komið í lag.
„En það er bara staðreynd að þetta hefur ekki gengið eins vel og við vonuðumst til og það er bara mjög leiðinlegt en auðvitað er verið að vinna að því á fullu að koma í veg fyrir hnökra. þannig að þetta virki eins og þetta eigi að gera.“