„Við skulum vera stolt af því að tilheyra þessu góða fólki og landinu okkar og geta með gleði kallað okkur Íslendinga,“ segir Hjálmar Magnússon, fyrrverandi framkvæmdastjóri, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Segja má að þar skrifi hann einskonar hvatningarpistil til Íslendinga og segir hann Íslendingum að bera höfuðið hátt, engin ástæða sé til annars þó staðan gæti vissulega verið betri víða í samfélaginu.
Of upptekin af því neikvæða
„Við sem byggjum þetta land okkar spáum líklega ekki oft í það hversu gott landið okkar er og erum oft upptekin af því að tala mikið um rigninguna og köld veður,“ segir Hjálmar sem bendir á nokkrar staðreyndir máli sínu til stuðnings.
„Hvar í Evrópu getum við drukkið vatnið beint úr krananum? Líklega mjög óvíða, hérna hjá okkur getum við alls staðar fengið okkur vatn að drekka beint úr krönum heimilanna með einstökum tímabundnum undantekningum,“ segir hann og nefnir einnig hreina jökulkalda vatnið út um öll fjöll og firnindi. Hann heldur áfram.
„Víðast suður um alla Evrópu þarf að nota olíu eða kol með tilheyrandi mengun og kostnaði til upphitunar alls þess rýmis og vatns sem hita þarf upp. Á landinu okkar eru margir áratugir og fer líklega bráðum að nálgast hundrað árin síðan borgin okkar, Reykjavík, fór að nota hitaveitu sem lögð var í flest hús borgarinnar með miklum sparnaði fyrir íbúa og snemma á síðustu öld voru byggðar sundlaugar fyrir íbúana, allt hitað með náttúrulegu heitu vatni. Ekki má gleyma því að nánast sama hvar umhverfis landið, jafnt á þéttbýlisstöðum og nokkuð víða úti á víðavangi, eru sundlaugar.“
Kostirnir svo margir
Hjálmar bendir svo á að við framleiðum mikið af rafmagni með heita vatninu, um sé að ræða nánast mengunarlausa framleiðslu meðan nágrannalöndin okkar þurfa mestmegnis að brenna olíu eða kolum við sína raforkuframleiðslu.
„Við eigum eftir að telja upp marga góða kosti landsins okkar, svo sem að það að vera á eyju hér langt frá stærstu landbúnaðarsvæðum veraldarinnar veitir okkur mikil hlunnindi hvað varðar landbúnað í landinu. Hér erum við laus við margar landlægar pestir sem hrjá landbúnað í nágrannaríkjum okkar og þar með spörum við lyfjakaup í bústofna okkar með auknu heilbrigði fyrir búfé okkar og ekki bara fyrir búféð heldur þar af leiðandi heilbrigðari og hollari fæðu fyrir fólkið í landinu.“
„Drengurinn var fljótur að bregðast við“
Hjálmar segir þetta aðeins brot af kostunum við landið okkar. Hann talar ekki bara vel um landið heldur líka um okkur Íslendinga. „Líklega er, þegar allt kemur til alls, landið okkar og fólkið ekki bara gott heldur frábært!,“ segir hann og bætir við að hann hafi verið bundinn hjólastól í rétt um 12 ár. Hann rifjar upp eina skemmtilega sögu af ungum pilt sem bauð fram aðstoð sína.
„Í allan þennan tíma, 12 ár, hef ég ekki í eitt einasta skipti fundið fyrir kuldalegu eða fráhrindandi viðmóti heldur alltaf fengið hlýlegt og notalegt viðmót hjá öllum sem ég hef mætt á lífsbraut minni og allir tilbúnir að sýna gott viðmót og bjóða fram hjálp sína. Meira að segja eitt sinn er ég var að fara í lyftu kom lítill drengur til mín sem sá að ég var að fara í lyftuna, hann bauð fram hjálp sína. Ég hafði gaman af stráksa og bað hann endilega að hjálpa mér, ég væri svo mikill klaufi að ýta á takka. Drengurinn var fljótur að bregðast við og bjarga mér og spurði mig á hvaða hæð ég vildi fara og var sá stutti fljótur að ýta á réttu takkana, drengurinn var ákaflega stoltur með sig að hafa hjálpað manninum í hjólastólnum og sá ég á eftir honum þar sem hann hljóp glaður til foreldra sinna eftir þetta afrek sítt! Hjálpsemin var þessum unga dreng í blóð borin, við skulum því vera stolt af því að tilheyra þessu góða fólki og landinu okkar og geta með gleði kallað okkur Íslendinga.“