Óhætt er að segja að hitabylgja sé nú á Austurlandi og er hitinn víða 25-26 gráður. Samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofu Íslands mældist 26,1 stigs hiti á Kollaleiru í Reyðarfirði í dag og er það mesti hiti sem mælst hefur á láglendi í dag.
Á Egilsstaðaflugvelli var 25,6 stiga hiti og á Eskifirði mældist 25,1 gráða í dag. Klukkan 14 í dag var 11 stiga hiti í Reykjavík.
Það verður áfram hlýtt og sólríkt á austan- og norðanverðu landinu næstu daga og má gera ráð fyrir 23 stiga hita á Egilsstöðum á morgun og 19 stiga hita á Akureyri svo dæmi séu tekin. Ef marka má sjálfvirkt spákort Veðurstofunnar verður ekki heldur ský á himni. Það verður svo áfram hlýtt um helgina, í kringum 20 gráður, en að líkindum ekki eins sólríkt og verið hefur á þessum slóðum.
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu geta gert ráð fyrir 10-12 stiga hita og skýjuðu veðri fram yfir helgi hið minnsta.