Hitamet gæti fallið í höfuðborginni á morgun
Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur segir að hitamet gæti fallið í höfuðborginni á morgun. Hitinn gæti farið upp í 17 stig.
Þetta segir veðurfræðingurinní samtali við Fréttablaðið.
„Mér sýnist að hæsti hiti sem orðið hefur í Reykjavík núna í ágúst sé 13,9°C þann 16. ágúst síðastliðinn. Við gætum því verið að tala um hækkun um þrjár gráður eða svo frá því besta sem verið hefur í mánuðinum,“ segir Siggi.
„Nú síðan má minna á það að 29. ágúst næstkomandi er Höfuðdagur og þá segir veðurhjátrúin að veðrabreytingar verði frá því sem verið hefur og sem standa muni í 20 daga samfellt,“ segir Siggi sem hefur gaman af svona hjátrú.
Viðtalið við Sigga í heild sinni á vef Fréttablaðsins.