Hellen Linda Drake, rithöfundur og baráttukona, lést á Landspítalanum þann 19. nóvember síðastliðinn.
Mannlíf greindi frá andláti Lindu en ákall hennar í októbermánuði vakti talsverða athygli. Í byrjun október sögðu Mannlíf og DV frá því að Linda ætti sér þann draum að fá að verja síðustu ævidögunum heima á Íslandi en hún hafði verið búsett í London.
Linda hafði greinst með ólæknandi krabbamein og þurfti að draga fram lífið á sjúkradagpeningum. Vildi hún flytja eigur sínar heim til Íslands en eins og gefur að skilja fylgdi því töluverður kostnaður.
Í frétt Mannlífs í dag kemur fram að hinsta ósk Lindu hafi ræst og er vísað í skrif dætra hennar á Facebook.
„Hennar seinustu óskir, að flytja heim og kveðja okkur systurnar rættust. Viljum við þakka öllum þeim sem lögðu henni lið við að láta þær rætast. Þetta skipti hana öllu máli,“ sagði meðal annars í fréttinni.
Linda skrifaði meðal annars Launhelgi lyganna sem kom út árið 2000 undir höfundarnafninu Baugalín. Þótti verkið marka ákveðin tímamót í frásögnum af kynferðisofbeldi, en í bókinni lýsti hún kynferðisbrotum stjúpföður síns.