Hinn grunaði í máli Madelein­e var einnig grunaður um aðild að hvarfi 5 ára stúlku árið 2015

Christian B., 43 ára gamall Þjóð­verji sem grunaður er um aðild að hvarfi Madelein­e Mc­Cann árið 2007, hefur einnig verið til rann­sóknar hjá þýskum lög­gæslu­yfir­völdum vegna hvarfs fimm ára stúlku árið 2015.

Lög­regla telur margt benda til þess að Christian hafi rænt Madelein­e á Al­gar­ve árið 2007 og ráðið henni bana.

Sjá einnig: Þetta er vitað um hinn grunaða í máli Madeleine McCann.

BBC greinir frá því – og vísar í um­fjöllun þýskra fjöl­miðla – að stúlkan, Inga Gehricke, hafi horfið þann 2. maí árið 2015. Hún var á ferða­lagi með fjöl­skyldu sinni í Sax­landi-Anhald. Þess er getið að Christian hafi verið bú­settur ekki langt frá á þessum tíma, eða í borginni Brúns­vík (þ. Braunschweig).

Lög­regla hefur ekki viljað stað­festa eitt eða neitt í sam­bandi við málið en heimildir þýskra fjöl­miðla herma að lög­regla hafi leitað ítar­lega að Ingu á land­svæði við heimili Christians í febrúar 2016.

Þýska blaðið Volks­stimme segir frá því að einnig hafi verið leitað á heimili Christians. Ekkert hefur spurst til Ingu frá hvarfi hennar og virðist rann­sókn lög­reglu á Christian hafa verið hætt eftir að ekkert fannst sem bendlaði hann við hvarfið.

Fjöl­skylda Ingu var að grilla um­rætt laugar­dags­kvöld í skóg­lendi í Wil­helms­hof í maí 2015. Inga hafði verið við leit að eldi­við skammt frá en hvarf skyndi­lega spor­laust um kvöld­matar­leytið. Skipu­lögð leit var gerð í skóginum en hún skilaði engum árangri.