Christian B., Þjóðverjinn sem grunaður er um aðild að hafa numið Madeleine McCann á brott og myrt hana árið 2007, hefur verið færður til í fangelsinu í Kiel þar sem hann afplánar dóm fyrir nauðgun og fíkniefnalagabrot.
Að því er fram kemur í frétt Sky News var þetta gert til að tryggja öryggi hans, en fangelsisyfirvöld hafa áhyggjur af því að aðrir fangar kunni að vinna honum mein. Christian þessi er 43 ára gamall og var hann nafngreindur af erlendum fjölmiðlum í liðinni viku. Telja saksóknarar í Þýskalandi að hann sé maðurinn sem rændi Madeleine McCann í maíbyrjun 2007 þegar hún var í sumarfríi á Algarve með fjölskyldu sinni.
Belgísk yfirvöld staðfestu í morgun að þau ætluðu að hefja aftur rannsókn á morðinu á Carolu Titze, 16 ára stúlku, sem var myrt árið 1996. Ætla yfirvöld að kanna hvort Christian sé maðurinn sem myrti hana.
Carola fannst látin við belgíska strandbæinn De Haan sumarið 1996 en rannsókn leiddi í ljós að hún hafði átt í samskiptum við ungan Þjóðverja áður en hún var myrt. Lögregla lagði þunga áherslu á að finna umræddan mann en leit að honum bar ekki árangur. Umræddur maður hafði rætt við Carolu um afbrotaferil sinn.
Í fréttum belgískra fjölmiðla segir Paul Gevaert, sem fór fyrir rannsókn málsins á sínum tíma, að lýsingarnar á umræddum manni komi heim og saman við Christian.