„Ríkisstjórn Íslands sýnir sitt rétta andlit með brottvísun barna til Grikklands í nótt eða aðra nótt.“
Þetta sagði Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona og gagnrýnir harðlega ríkisstjórnina. Hún segir að tvær ungar konur, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hafi tekið þá ákvörðun að senda ung flóttabörn og fjölskyldur þeirra til Grikklands á sama tíma og þjóðarleiðtogar annara Evrópuríkja bjarga börnum þaðan vegna skelfingarástands sem þar ríkir.
Sema Erla Serdar hélt því fram fyrr í dag að brottvísun hefði verið frestað og það væri líklega vegna aðstæðna þar. Í tilkynningu frá Útlendingastofnun segir að það sé ekki rétt að grísk stjórnvöld hafi hafnað því að taka við einstaklingum sem hafa fengið alþjóðlega vernd í Grikklandi heldur hafi brottvísunum einungis verið frestað tímabundið vegna breytinga í stjórnsýslunni. Það standi því enn til að henda börnunum úr landi.
Þá segir Steinunn að þó almenningur öskri sig hásan á samskiptamiðlum heyrist engin viðbrögð frá „hinum ísköldu“ Katrínu og Áslaugu Örnu.
„Hluti landsmanna svo gjörsamlega aftengdur að hann fyllir nú hillur af stroganoff og saltsíld eftir ráðleggingum almannavarna, grætur aflýstar skíðaferðir og heldur gala-kvöld þegar hann lýkur sóttkví. Sjálfhverf, stríðalin og spillt þjóð,“ segir Steinunn og bætir við:
„Við skulum átta okkur á því að við munum öll tapa í þessu máli og verða minni manneskjur á eftir. Auðvirðilegar mannleysur sem eiga enga samkennd til og þannig mun sagan minnast okkar. Íslensk stjórnvöld gera okkur nú meðsek í glæpum sínum gegn mannkyninu og við munum aldrei bíða þess bætur. Aldrei.“