Hilmar var skilinn eftir yfir helgina: „Ég var orðinn mjög þyrstur á sunnudagskvöldinu“

Hilmar Kolbeins, 45 ára fjölfatlaður maður, fékk enga aðstoð yfir helgina eftir að starfsmaður hans hringdi sig inn veikan. Hilmar segir við Fréttablaðið að hann hafi haft samband við heimahjúkrun, Landspítalann og Læknavaktina en enginn hafi gert neitt.

Það þarf að setja á disk fyrir framan mig, ég get ekki sett á disk sjálfur. Ef það er búið að setja á disk fyrir framan mig og brytja niður þá get ég borðað sjálfur. Það þarf að hella í glas fyrir mig, þá get ég drukkið sjálfur,“ sagði Hilmar.

„Ég var orðinn mjög þyrstur á sunnudagskvöldinu.“

Hilmar segir hræðilegt að vera aleinn þar sem eitthvað gæti komið upp á. Þá hafi hann fengið tvö ný legusár.

Hilmar hefur áður opnað sig raunir sínar í kerfinu síðasta árið en hann dvaldi á spítala og hjúkrunarheimili á víxl mánuðum saman. Hann fór loksins heim til sín núna í febrúar eftir að hafa ráðið til sín tvo ófaglærða starfsmenn með beingreiðslusamningi við Reykjavíkurborg.