Hilmar Örn Kolbeins lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut mánudaginn 5. september síðastliðinn, 45 ára að aldri.
Fréttablaðið greinir frá andláti hans en blaðið hefur undanfarna mánuði fjallað ítarlega um baráttu hans við Reykjavíkurborg vegna skorts á þjónustu. Hilmar var fjölfatlaður
Fréttablaðið hefur fjallað ítarlega um baráttu Hilmars, sem var fjölfatlaður, við Reykjavíkurborg vegna skorts á þjónustu. Hann dvaldi langtímum saman á hjúkrunarheimili en lenti á spítala vegna legusárs í febrúar síðastliðnum.
Hann gekkst undir aðgerð og lauk þeirri meðferð í maí og lagði spítalinn þá inn beiðni um að hann fengi að snúa aftur heim eins og áætlað var og var óskað eftir að heimahjúkrun tæki aftur við honum. Þeirri beiðni var hafnað og dvaldi Hilmar mánuðum saman á sjúkrahúsi í staðinn.
Hilmar hefði orðið 46 ára í október en útför hans fer fram frá Bústaðakirkju á morgun, fimmtudag, samkvæmt dánartilkynningu sem birtist í Morgunblaðinu í dag.