Hilmar hefur ekki verið baðaður í þrjá mánuði: „Sinnum benti á heima­hjúkrun og heima­hjúkrun sagði nei“

Hilmar Kol­beins sem er 45 ára og fjöl­fatlaður hefur ekki fengið við­unandi þjónustu frá Reykja­víkur­borg svo mánuðum skiptir, sem dæmi hefur hann ekki verið baðaður frá því í byrjun febrúar. Þetta kemur fram í við­tali Frétta­blaðsins við Hilmar.

Flóki Ás­geirs­son, lög­maður Hilmars, segir með­ferðina sem Hilmar hefur sætt af hálfu borgarinnar vera á þá leið að bregðast þurfi við. Til greina komi að leita til Mann­réttinda­dóm­stóls Evrópu vegna málsins. „Ég held að það sé eitt­hvað sem við hljótum að skoða að Hilmar leiti réttar síns,“ segir Flóki í sam­tali við Frétta­blaðið.

Í febrúar síðast­liðinn fékk Hilmar loks að snúa aftur heim en þá hafði hann dvalið á spítala og hjúkrunar­heimili á víxl í tæpt ár. Reykja­víkur­borg hafði boðið Hilmari bein­greiðslu­samning til að ráða inn sitt eigið starfs­fólk, sem hann gerði.

Eftir þriggja mánaða reynslu af bein­greiðslu­samningnum var ljóst að hann dugði ekki til fyrir þjónustu Hilmars og bauðst borgin til að taka yfir samninginn og út­hluta honum þjónustu frá og með 1. maí sem hann þáði.

Á meðan Hilmar var með bein­greiðslu­samning kom ýmis­legt upp, meðal annars var ljóst frá upp­hafi að upp­hæð samningsins dygði ekki fyrir nauð­syn­legri þjónustu.

Þá hefur heima­hjúkrun þurft að koma dag­lega til Hilmars til að skipta um sára­bindi á legu­sárum.

Starfs­fólk fyrir­tækisins sem Hilmar réð vildi til að mynda ekki baða hann, sagði það ekki þeirra hlut­verk og benti á heima­hjúkrun.

Hilmar segir heima­hjúkrun hafa neitað því og að enginn hafi viljað bera á­byrgð á þeirri þjónustu. „Ég hef ekki komist í bað síðan ég var á spítalanum sem var í byrjun febrúar. Sinnum benti á heima­hjúkrun og heima­hjúkrun sagði nei,“ segir Hilmar.

Frá 30. apríl síðast­liðnum hefur Hilmar sofið sitjandi í hjóla­stólnum sínum vegna skorts á þjónustu frá borginni og þá hefur hann þurft að leita á bráða­mót­töku Land­spítalans til að fá við­eig­andi að­stoð.

Í upp­hafi vikunnar leitaði Hilmar á bráða­mót­töku til að láta tæma úr þvag­poka, hann mætti um ellefu að kvöldi til og var ekki kominn heim fyrr en um sex að morgni til.

Hilmar segir að borgin beri fyrir sig undir­mönnun og erfið­leika við ráðningar.

Hægt er að lesa viðtalið við Hilmar og Flóka í heild sinni hér.