Hilmar furðar sig á ummælum Ólafs: „Ætlar Ólafur þá ekki að hætta að kaupa íslenskar vörur?“

Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor á viðskipta- og raunvísindasviði Háskólans á Akureyri, furðar sig á skrifum Ólafs Stephensen, formanns Félags atvinnurekenda, á Facebook í gær.

Ólafur benti á að veitingastaðirnir Metro, American Style, Aktu Taktu, Hamborgarafabrikkan, Shake & Pizza, Blackbox, Keiluhöllin og trampólíngarðurinn Rush væru nú allir í eigu Kaupfélags Skagfirðinga. Einn af æðstu stjórnendum fyrirtækisins ber nafnbótina heiðurskonsúll Rússlands á Íslandi.

Ólafur hefur áður gagnrýnt það að þessi tiltekni stjórnandi hafi ekki sagt af sér þessari heiðursnafnbót eftir innrás Rússa í Úkraínu. „Ég veit þá hvert ég er ekki að fara með fjöl­­skylduna að fá mér að snæða,“ sagði Ólafur.

Hilmar furðar sig á þessu og segist hingað til hafa haft gott álit á Ólafi. Þetta þyki honum þó sérkennilegur málatilbúnaður.

„Mér vitanlega er Ísland enn með stjórnmálasamband við Rússland. Í Moskvu situr sendiherra Íslands og í Reykjavík situr sendiherra Rússlands. Ætlar Ólafur þá ekki að hætta að kaupa Íslenskar vörur með þeim rökum að Íslensk stjórnvöld séu með stjórnmálasamband við Rússland, sem gerði innrás í Úkraínu.“

Hilmar segir að starf konsúls eða ræðismanns hafi nákvæmlega ekkert með stríðsrekstur í Úkraínu að gera.

„Starfsemi Kaupfélags Skagfirðinga hefur heldur ekkert með innrás Rússlands í Úkraínu að gera. Kaupfélagið skipar enga ræðismenn. Mér finnst svona árás á einstakling og félag sem hann starfar hjá vegna innrásar Rússa inn í Úkraínu vera óviðeigandi. Og þá er vægt til orða tekið. Nær væri Ólafi að beina spjótum sínum að Íslenskum stjórnvöldum ef hann telur að slíta eigi stjórnmálasambandi Íslands við Rússland. Þá myndi væntanlega starfs konsúls leggjast niður um leið enda ekkert stjórnmálasamband lengur.“

Hilmar kveðst í grein sem hann skrifar á Vísi sjálfur versla við Kaupfélag Skagfirðinga þegar færi gefst. Þá aðstoði hann líka vini sína í Úkraínu eftir bestu getu.