Hildur varð vitni af á­rásinni við rúss­neska sendi­ráðið: „Öskraði help help"

Ís­lenski rit­höfundurinn Hildur Knúts­dóttir varð við­stödd þegar ráðist var á mann fyrir utan rús­senska sendi­ráðið í dag.

Fjöldi fólks lagði leið sína fyrir utan rúss­neska ráð­herra­bú­staðinn á Tún­götu 24 í morgun til að sýna Úkraínu sam­stöðu.

Sam­kvæmt vitnum var ráðist á mann fyrir utan sendi­ráðið og að sögn Hildar öskraði maðurinn „help help!“ á meðan á á­rásinni stóð. Sam­kvæmt heimildum Frétta­blaðsins var á­rásin til­hæfu­laus. Maðurinn er sagður vera á leið í læknisskoðun samkvæmt mbl.is

Rauðr­i máln­ing­u hef­ur ver­ið hent á bygg­ing­ar rúss­nesk­a send­i­ráðs­ins í tví­­­gang sl sólar­hring. Í gær hús­­næð­i þeirr­a við Tún­­göt­u og svo í morg­un var aft­ur hent rauðr­i máln­ing­u yfir merk­i send­i­ráðs­ins sem er fest á bygg­ing­u þeirr­a í Garð­a­­stræt­in­u.

Rík­is­lög­regl­u­­stjór­i og lög­regl­an á höf­uð­­borg­ar­­svæð­in­u rann­sak­a nú skemmd­ar­­verk á send­i­ráð­i Rúss­a við Tún­­göt­u.

Starfs­mað­ur rúss­nesk­a send­i­ráðs­ins, sem vild­i ekki láta nafns síns get­ið, seg­ir í sam­tal­i við Frétt­a­blað­ið að þau hafi til­­kynnt skemmd­ar­­verk­in til lög­regl­unn­ar. Hún vild­i ekk­ert frek­ar tjá sig um mál­ið en að­­spurð hve­­nær máln­ing­in yrði þrif­in af seg­ir hún að starfs­­menn send­i­ráðs­ins ætli sér ekki að þríf­a máln­ing­un­a af.

„Sá sem gerð­i þett­a á að þríf­a þett­a,“ seg­ir hún.