Hildur um nýju Metoo-bylgjuna: „Samfélagsmiðlar eru hrikalegur dómstóll“

Hildur Sverrisdóttir, lögfræðingur, fyrrverandi borgarfulltrúi og núverandi aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, kveðst fagna þeirri mikilvægu umræðu sem nú á sér stað í tengslum við Metoo-byltinguna nýju.

Hildur skrifar pistil um málið á Facebook-síðu sína þar sem hún veltir meðal annars fyrir sér þeirri umræðu sem fer fram á samfélagsmiðlum þar sem fólk lætur ýmislegt flakka. Hildur segir í pistlinum að hún sé sjálf þolandi og þá hafi hún talsverða reynslu af störfum gegn kynferðisbrotum.

Lögin ekki óvinur fólksins

„Það hefur verið þungbært að lesa yfir allan þann aragrúa frásagna þar sem fólk lýsir upplifun sinni af ofbeldi. Það er þungbært að átta sig á að það séu enn alvarlegar brotalamir í samskiptum fólks og í kerfinu sem á að styðja við það,“ segir hún og bætir við að segja megi að síðustu ár hafi verið ein langvarandi bylting. Kerfið nú þurfi að geta brugðist við flóknara og grárra svæði en hingað til hefur verið einblínt á og þá sérstaklega með það fyrir augum að þolendur og gerendur fái betri leiðsögn, stuðning og lausnir. Lögin séu mannanna verk og geta aðlagast og breyst með breyttum samfélagsviðmiðum.

„Lögfræðingurinn sem ég er á samt alltaf erfitt með að kryfja slík mál algjörlega óháð lagalegu hliðinni. Lögin eru ekki óvinur fólksins í landinu heldur þvert á móti eru þau í grunninn samfélagssáttmáli fólksins. Lögin verða aldrei fullkomin en sanngjarnt réttarkerfi er ein mikilvægasta trygging mannréttinda sem fram hefur komið í sögu mannkyns. Við getum bæði litið aftur í söguna og til landa í heiminum í dag þar sem réttarkerfið er virt að vettugi og lög túlkuð eftir hentugleik sem býður upp á ógeðfellt ofríki ríkja gagnvart fólkinu sínu.“

Fólk megi ekki taka sér refsivald

Hildur segir að ef við ætlum að breyta samfélaginu verði það að vera með þeim hætti að við kollvörpum ekki kerfum sem þjóna þeim tilgangi að vernda grunnréttindi borgaranna og að óréttlæti sé ekki bætt með því að búa til annað óréttlæti.

„Samfélagsmiðlar eru frábær vettvangur fyrir byltingar en hrikalegur dómstóll. Þetta finnst mér verða að hafa í huga þótt tilfinningarnar gagnvart kerfi sem þykir ekki virka á sanngjarnan hátt séu meira en skiljanlegar. Byltingunni fylgja ótal raddir og skoðanir um hvernig eigi að bregðast við. Við höfum þegar séð atlögur gerðar að því að framfylgja réttlætinu svo að segja í beinni og það vekur mér raunverulegum ugg að það verði að viðteknum hlut að fólk í samfélaginu taki refsivaldið í sínar hendur þegar kerfið bregst,“ segir hún.

Hún segir mikilvægt að við tökum okkur tíma til að ræða hvernig við viljum leysa vandann og hvaða áhrif lausnirnar geta haft á allt samfélagið, að öðrum kosti geti farið illa.

„Ef við viljum gera gagngerar breytingar verðum við að ræða það til hlítar og líta á allar mögulegar afleiðingar. Við getum ekki krafist kollvörpun kerfa nema ræða hvað eigi að komi í staðinn. Þess vegna hlýtur nú að taka við heiðarlegt samtal um það hvernig við getum breytt menningunni sem býr til ofbeldið, búið til samfélag sem hlustar og trúir og býður leiðir sem koma að raunverulegu gagni fyrir þolendur og gerendur - en að við gætum þess að á eftir sitjum við ekki uppi með ríki þar sem fólk getur ekki treyst því að réttarkerfið verndi grunnréttindi þeirra.“